Kuldaboli bítur hressilega inn til landsins í dag. Frostið mældist 22,5 stig við Mývatn í morgun og er það mesti kuldi sem mælst hefur á landinu frá miðnætti. Þar hefur mælst um og yfir 20 stiga frost frá því klukkan sjö í morgun.
Víðar frystir inn til landsins. Frostið mældist 18,4 stig á Þingvöllum í morgun og 18,2 stig á mæli í Mývatnsöræfum.
Hitastigið hefur aðeins þokast yfir frostmark á nokkrum stöðum. Mesti hitinn mældist í Botni í Súgandafirði, 2,1 stig.Frosin blóm á Austurlandi.RÚV / Rúnar Snær Reynisson
