Hátt í þrisvar sinnum fleiri greinast hlutfallslega með lekanda hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fólk greinist sem fyrst.
Á fyrstu níu mánuðum ársins greindust 283 með lekanda hér á landi og hafa ekki verið fleiri í 40 ár. Þetta er hátt í 20% aukning síðan í fyrra og fimmföldun frá 2021.
Þetta eru 72 á hverja 100.000 íbúa sem er talsvert meira en meðaltalið í Evrópu sem er 27 á hverja 100.000.
Karlar í miklum meirihluta
88% þeirra sem hafa greinst það sem af er ári voru karlar – eða 249 og 12% konur eða 34. Mesta aukningin í ár er hjá körlum sem eru 30 ára og eldri.
Fólk á öllum aldri greinist með lekanda en flestir á aldrinum 30 – 44 ára. 57% þeirra sem hafa greinst í ár eru með íslenskt ríkisfang.
Ýmsar ástæður koma til greina
„Það sem hefur verið nefnt í Evrópu, því þetta sést líka í sumum öðrum Evrópulöndum, er hugsanlega minni notkun á smokki. Breytt kynhegðun, fleiri bólfélagar. En við vitum ekki hvað af þessu eða hvaða samsetning af þessum þáttum hugsanlega veldur þessu hér,“ segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir, spurð um ástæður þessa.
Guðrún segir að smokkurinn sé besta vörnin gegn lekanda og mikilvægt sé að leita meðhöndlunar sem fyrst, greinist smit.
„En það er þá mikilvægt að greina hann snemma áður en fólk smitar aðra.“
Er þetta áhyggjuefni, þessi aukning? „Já þetta er áhyggjuefni að því leyti að þetta getur verið alvarlegur sjúkdómur.“
Hvað er lekandi?
- Lekandi er kynsjúkdómur sem orsakast af bakteríunni Neisseria gonorrhoeae, samkvæmt upplýsingum á vefsíðu embættis landlæknis.
- Sjúkdómurinn smitast við beina snertingu slímhúðar í kynlífi. Þá geta börn smitast í augum við fæðingu ef móðir er með lekanda.
- Lekandabakterían getur sest að í kynfærum, þvagrás, endaþarmi og hálsi og borist í augu.
- Karlar, sem eru með lekanda, finna gjarnan fyrir óþægindum við þvaglát en konur eru oft einkennalausar og lekandi getur valdið ófrjósemi og ýmsum kvillum.
- Komi einkenni fram er það oftast 1–7 dögum eftir smit. Þau geta komið fram síðar.
- Hægt er að fara í sýnatöku á göngudeild húð- og kynsjúkdóma og á heilsugæslustöðvum.
Enginn ofurlekandi hér á landi
Svokölluð ofurlekandabaktería hefur greinst víða um heim – en hún er ónæm fyrir hefðbundnum sýklalyfjum. „Það hefur ekki greinst hér á landi enn sem komið er, sem betur fer.“
