Á annað hundrað fjár grafið úr fönn suður af Blönduósi

Talsverðar annir voru í gærkvöld hjá lögreglu og björgunarsveitum vegna norðanhríðarveðursins sem gekk yfir landið norðan- og austanvert. Aðgerðir gengu vel og allur vandi leystist giftusamlega að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Aðgerðum hafi lokið um klukkan eitt í nótt.

„Ég held þetta hafi farið nokkuð vel miðað við veðurhaminn sem gekk yfir okkur. Það urðu náttúrulega talsverðar raskanir á samgöngum, sérstaklega kannski milli Holtavörðuheiðar og Öxnadalsheiðar þar sem einhverjir tugir lentu í vandræðum.“

Snemma í morgun voru björgunarsveitir kallaðar út til liðsinnis við bónda nokkurn suður af Blönduósi sem óttaðist að allt að fjögur hundruð fjár hefði fennt í nótt. Þegar lögreglu bar að kom á daginn að ástandið var ekki jafn alvarlegt, segir Jón.Það vaknaði bóndi í Húnavatnssýslunum frekar illa og áttaði sig á að stór hluti af hans fé, eða allavega rétt yfir fjögur hundruð kindur virtust fenntar. Hve margar voru raunverulega grafnar upp? Mér sýndist svona að það væri eitthvað á annað hundrað en þeim var allavega um 400 komið á hús. En eitthvað drapst hjá honum, því miður.

Í morgun kom Björgunarfélag Hornafjarðar hratt og örugglega í veg fyrir foktjón á einni byggingu á Höfn í Hornafirði. Björgunarsveitir losuðu fimm bíla og langferðabíl sem festust á Vatnsskarði í gærkvöld og komu rútunni í Varmahlíð.

Félagar í björgunarsveitinni Súlum aðstoðuðu við að koma uppsjávarskipinu Vilhelm Þorsteinssyni í örugga höfn í gærkvöld eftir að það losnaði frá bryggju við höfnina á Krossanesi á Akureyri.

Birkir Hreinsson, einn skipstjóra á Vilhelm, segir í samtali við fréttastofu að mun betur hafi farið en á horfðist og hann telur að skipið sé óskemmt. Mjög erilsamt var hjá lögreglu og björgunarsveitum á Norðurlandi vestra í gærkvöld við að losa bíla sem sátu fastir á vegum.

Jón Þór Víglundsson segir að snúið kunni að vera að koma viðvörunum til vegfarenda. „Þetta er bara svona. Fólk er á ferðinni og þarf að komast á milli. Stundum er heppnin með því og stundum ekki.“ Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá aðgerðir á Vatnsskarði í gærkvöld.Björgunarsveitir höfðu í talsverðu að snúast í gærkvöld og framan af nóttu vegna hríðarveðurs sem gekk yfir landið norðan- og austanvert. Allt fór vel, segir upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Í morgun þurfti að grafa fé úr fönn nærri Blönduósi.