Á annað hundrað manns fögnuðu 100 ára afmæli kýrinnar Huppu

Huppa var fædd 3. nóvember 1926 og haldið var upp á afmælið með fjölmörgum erindum og umræðum í félagsheimilinu á afmælisdeginum sjálfum.

Huppa var brandhuppótt, rauð, svört og hvít og náði 17 ára aldri. Hún var mjög mjólkurlagin og með mjög góða erfðaeiginleika. Hún mjólkaði líka einstaklega vel.

En eigum við einhverja sambærilega kú í dag?

„Nei en auðvitað hafa orðið miklar framfarir í nautgriparækt þannig að kýrnar í dag mjólka gríðarlega mikið og mikið meira en hún gerði en erfiðayfirburðir Huppu voru alveg óumdeilanlegir á sínum tíma,” segir Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands.

Það var gaman að sjá allar myndirnar á veggjum félagsheimilisins af kúm sem nemendur í Flúðaskóla teiknuðu og lituðu.

„Já, krakkarnir tóku sig til og gerðu verkefni um Huppu þannig að við erum með falleg listaverk hér út um allan sal,” segir Fjóla Ingveldur Kjartansdóttir, kúabóndi og einn skipuleggjandi málþingsins.

En hvernig er að vera kúabóndi í dag?

„Það er bara gaman og gott eins og alltaf, það er alltaf svo gott að vera með kúnum og vera hjá þeim,” segir Fjóla Ingveldur en búið er í Birtingaholti í Hrunamannahreppi.

Jón Viðar Jónmundsson var að gefa út bók um Huppu og hann var líka einn af skipuleggjendum málþingsins og frummælandi.

„Nú þetta var bara yfirburðagripur umfram allar kýr á Íslandi og það finnst engin kýr í heiminum sem hefur haft innan síns kúakyns jafn mikil áhrif og Huppa. Allar mjólkurkýr á Íslandi eru afkomendur Huppu,” segir Jón Viðar.

En hvað segir fyrrverandi landbúnaðarráðherra, hvað er svona merkilegt við Huppu?

„Huppa, mjólk er góð og hún er formóðir allra kúa og náttúrulega einstakur kynbótagripur. Þjóðin er að hugsa um Huppu og þakkar henni af einlægni,“ segir Guðni Ágústsson og bætir við.

„Ég er bara gríðarlega bjartsýnn á íslenska bændur og arfleifð Huppu. Við eigum frábærar mjólkurkýr og þessi litla kýr er með bestu kúm heimsins.”

100 ár eru frá því að ein allra frægasta kýr landsins, Huppa frá Kluftum í Hrunamannahreppi, fæddist en hún er gjarnan nefnd ættmóðir íslenska kúastofnsins. Á annað hundrað manns komu saman á Flúðum til að fagna afmæli Huppu.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.