Fyrir tveimur árum taldi embætti ríkislögreglustjóra verulega skorta á að lögregla gæti sinnt lágmarksviðmiðum um öryggis- og þjónustustig, um allt land, vegna manneklu. Þetta kemur fram í skýrslu um mannaflagreiningu ríkislögreglustjóra frá 2024 sem fréttastofa fékk afhenta nýverið.
Markmið nýrrar löggæsluáætlunar, um að fjölga lögreglumönnum í 100 á næstu fimm árum, er talsvert undir því sem ríkislögreglustjóri taldi þegar þörf á 2024. Formaður Landssambands lögreglumanna segir stöðuna afleiðingu niðurskurðar árum saman.
Þar segir að lögreglumenn þyrftu þá þegar að vera 1150 til að lögregla gæti sinnt hlutverki sínu með fullnægjandi hætti um allt land. Þeir voru þá 795. Verulega hafi vantað upp á að markmiðum löggæsluáætlunar til 2023 hafi verið náð.
Nú, tveimur árum síðar, eru lögreglumenn 807. Í nýrri löggæsluáætlun dómsmálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að lögreglumönnum fjölgi um 50 á ári og verði rúmlega þúsund árið 2031. Á sama tíma á að fjölga öðru starfsfólki embættanna um hundrað.
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir lögregluna hafa þurft að þola niðurskurð árum saman þrátt fyrir að verkefnin verði sífellt fleiri og flóknari.
„Við virðumst bara alltaf vera í sama vandamálinu ár eftir ár og lögreglumönnum hefur ekkert þannig lagað fjölgað mikið,“ segir hann. „Við komumst úr 700 upp í 800 núna á bara næstum áratug,“ segir hann.
Fá inn hina ýmsu sérfræðinga í flóknari rannsóknir
„Þetta gengur ekki nógu hratt og þess vegna er lögreglan farin að kalla til sérfræðinga,“ segir hann. Löggæsla sé orðin mun flóknari en áður.
„Við erum farin að kalla til tölvusérfræðinga, fjármálasérfræðinga og fleira bara til að hjálpa okkur og ná upp í þessa fjölgun sem þarf,“ segir hann.
„Þá verður að fjölga öðrum en menntuðum lögreglumönnum því við náum bara ekki að mennta þá nógu hratt.“ Menntunin skipti heilmiklu máli bæði fyrir samstarfsfólk og almenning.
„Það veitir öryggistilfinningu að vita að sá sem er með þér kunni á þetta allt og viti hvað hann er að gera. Þetta er fullt af góðu fólki sem starfar í lögreglunni en við viljum að allir séu menntaðir. Það er þá kannski fórnarkostnaður að lögreglumönnum fjölgi aðeins hægar,“ segir Fjölnir.
Reykjavík með verstu mönnun í Evrópu miðað við íbúafjölda
Á sama tíma og verið sé að reyna að efla almenna löggæslu og gera lögreglu sýnilegri þurfi sífellt að fá fólk úr almennu deildinni í flóknari rannsóknir, sem kalla á meiri mannafla. Of lítil skref hafi verið tekin síðustu ár. Samkvæmt löggæsluáætlunum ættu að minnsta kosti 200 fleiri lögreglumenn að vera á höfuðborgarsvæðinu en eru núna.
„Reykjavík er verst mannaða höfuðborg Evrópu þannig að það eru bara allt of fáir lögreglumenn og við viljum hafa lágmark tvo lögreglumenn á hverja 1000 íbúa og við erum ekki enn þá að ná því,“ segir Fjölnir.
Ráðherra hafi sagst þurfa að hringja í fjármálaráðherra
Fjölnir vonast til að fyrirhuguð sameining lögregluumdæma geti í raun auðveldað vinnu lögreglu og létt á. Það sé þó áhyggjuefni að fjármagn fylgi ekki nýrri löggæsluáætlun.
„Svo er verið að skera niður eins og fram kom hjá ráðherranum. Það er komin ný löggæsluáætlun en hún er ekki fjármögnuð ennþá. Hún sagðist þurfa að taka nokkur símtöl við fjármálaráðherra til að fá pening fyrir þessu,“ segir Fjölnir.
