Aðalmeðferð að ljúka í máli Írisar Helgu

Munnlegur málflutningur í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, er í dag. Þinghald hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Munnlegur málflutningur markar lok aðalmeðferðar. Skýrslutöku er lokið og ákærandi og verjandi halda ræður. Eftir málflutning er mál dómtekið. Dómari hefur þá fjórar vikur til að kveða upp dóm í málinu.

Aðalmeðferð málsins hófst á mánudaginn í síðustu viku.

Íris er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, skjalafals, rangar sakargiftir og ærumeiðandi aðdróttanir á árunum 2022 til 2025. Hún er sögð hafa stundað umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra, börnum tveggja þeirra og fjölskyldu.