„Víðtækur skilningur virðist ríkja á þeim hættum sem loftslagsbreytingar fela í sér, þótt aðgerðir skorti.“ Þetta er lykilsetning í nýútkomnu mati Loftslagsráðs á síðustu skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða um stöðu mótvægis- og aðlögunaragerða í loftslagsmálum. En er hún allskostar rétt? Hversu víðtækur og djúpstæður er þessi skilningur í raun? Verður ekki þvert á móti að álykta að það fólk sem ræður för, hér sem annars staðar í heiminum, skilji þetta langt í frá nógu vel – og jafnvel alls ekki?
Eða hvernig má annars skýra það sinnu- og aðgerðaleysi sem ráðafólk heimsins sýnir frammi fyrir þessari vá, þegar fyrir liggur að hlýnun Jarðar stefnir hraðbyri langt yfir tvær gráðurnar með tilheyrandi hörmungum og hamförum ef ekkert er að gert?
Stærsta áhættan
Grípum aftur niður í skýrslu Loftslagsráðs: “Samkvæmt nýjustu viðhorfsskýrslu Sameinuðu þjóðanna um aðsteðjandi áhættuþætti á heimsvísu, þar sem um 1.300 leiðandi aðilar og sérfræðingar frá 155 löndum heims eru spurðir álits, er aðgerðaleysi vegna loftslagsbreytinga stærsta áhættan sem mannkynið getur tekið.”
Og: “Af 28 áhættuþáttum er ófullnægjandi viðbragð við loftslagsbreytingum talin stærsta áhættan.”
Og: “Að öllu óbreyttu stefnir í að hlýnun miðað við meðalhita fyrir iðnbyltingu nemi 2,8 gráðum við lok aldarinnar. Það er innan einnar mannsævi. Slík hlýnun myndi kollsteypa lífsskilyrðum á jörðu.”
Halldór Þorgeirsson formaður loftslagsráðs mætti í viðtal í Speglinum og var fyrst spurður að því, hvers vegna svo illa gangi að beina ráðafólki á rétta braut aðgerða ef það hefur í raun víðtækan skilning á ógninni, eins og haldið er fram í skýrslu ráðsins.
Hann segir stöðuna mjög alvarlega og fara versnandi. Fyrir liggi að ekki verði hægt að halda hlýnun undir 1,5 gráðum frá meðalhita fyrir iðnbyltingu og að verði ekkert að gert fari hún að líkindum langt upp fyrir tvær gráðurnar, sem er yfirmarkmið Parísarsamkomulagins.
Halldór er líka þýfgaður um hvers vegna svo illa gengur að endurheimta votlendi á Íslandi og segir seinaganginn í því hvorutveggja óskiljanlegan og óafsakanlegan.
Matið of gloppótt og árangur skortir
Þá er leitað svara við því hvar skórinn kreppir helst í loftslagsaðgerðum almennt hér á landi og hvers vegna Loftslagsráð gefur fyrrnefndri skýrslu verkefnisstjórnar um stöðu mótvægis- og aðlögunaraðgerða nánast falleinkunn.
„Megingagnrýnin felst í þeirri staðreynd að þrátt fyrir betra upplegg og betri framsetningu á aðgerðum, eru aðgerðirnar ekki að skila nægilegum árangri,“ segir Loftslagsráð um aðgerðir verkefnisstjórnar og greinagerð hennar þar um. Áhrif aðgerðanna eru sögð óljós og enn skorti á að árangur þeirra sé metinn út frá loftslagsmarkmiðum. „Ekki er áætlað nema að litlu leyti hvaða áhrif einstakar aðgerðir hafa á losun.“
Enn fleira kemur til umræðu í lengri útgáfu viðtalsins, sem hlusta má á í spilaranum hér að neðan. Þar má meðal annars nefna lélega frammistöðu Íslands í samanburði við hin Norðurlöndin, en Ísland er eina landið sem hefur aukið heildarlosun utan landnotkunar á síðustu áratugum. Á meðan við losum 22 prósentum meira hefur losunin dregist saman um 14 prósent í Noregi, nær 35 prósent í Svíþjóð, næstum helming í Finnlandi og rúmlega helming í Danmörku.Loftslagsráð segir árangur loftslagsaðgerða stjórnvalda langt í frá nægan og óljóst hvaða áhrif þær hafa á losun. Formaður ráðsins segir óskiljanlegt og óafsakanlegt hve seint og illa gengur að endurheimta votlendi.
