Aðskotahlutir í hrekkjavökunammi „misheppnaður hrekkur innan lokaðs hóps“

Uppfært kl 15:33:

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur uppfært tilmæli sín um að grandskoða sælgæti sem börn á Akureyri fengu gefins á hrekkjavöku. Tilkynning hafði borist um að aðskotahlutir hafi fundist í sælgæti.

Í ljós hefur komið að þarna var „misheppnaður hrekkur innan lokaðs hóps“. Ekki sé grunur um að sælgæti með aðskotahlut hafi verið dreift utan hans.