„Áfall að sjá hversu margir féllu í versluninni Zöru“

„Við heyrðum hvelli. Fyrst datt manni í hug að þetta gætu verið flugeldar en svo var þetta svo hratt og reglulegt að það voru eiginlega allir sem áttuðu sig samstundis,“ segir Bjarni Vestmann, sem var ásamt eiginkonu sinni, Rakel Árnadóttur, á veitingastað á torginu þar sem árásarmaður hóf skothríð í Kraká í dag. Þau hjónin forðuðu sér inn á veitingastaðinn.

„Þegar þetta var yfirstaðið og ég kom út aftur þá áttaði ég mig á því að þetta var ekki nema 50 metra frá því þar sem við sátum,“ segir Bjarni.

Hann segir mildi að ekki fleiri skyldu hafa orðið fyrir skaða á torginu, sem er vinsæll og fjölmennur ferðamannastaður. „Að sama skapi var það áfall að sjá hversu margir féllu í versluninni Zöru.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.