Afkoma fyrirtækja stóð í stað milli 2024 og 2025

Afkoma fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu, að undanskilinni fjármála- og vátryggingastarfsemi, nam tæplega 518 milljörðum króna árið 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum. Þær byggja á fyrstu skilum skattframtala.

„Það var nær óbreytt niðurstaða frá árinu 2024 þegar þau skiluðu alls 520 milljörðum í hagnað. Dræmur tekjuvöxtur og aukinn fjármagnskostnaður skýrðu samdráttinn en heildartekjur fyrirtækja jukust um aðeins 2,1% á árinu,“ segir í tilkynningu frá Hagstofunni.

Miðað við aðrar atvinnugreinar var hagnaður mestur í fasteignastarfsemi, einkum útleigu atvinnuhúsnæðis.

Afkoma batnaði mest í einkennandi greinum ferðaþjónustu og sjávarútvegi auk vaxtar í bílasölu. Í framleiðslu málma dróst afkoma mikið saman. Greinin skilaði tapi árið 2025.

Dræmur tekjuvöxtur í flestum greinum

Þegar horft er á viðskiptahagkerfið í heild jukust tekjur fyrirtækja árið 2025 um alls 2,1% eða tæpa 152 milljarða króna. Rekstrarhagnaður jókst um 37 milljarða. „Afkoma fjármagnsliða versnaði hins vegar töluvert eða um 23,6%, sem hafði neikvæð áhrif á hagnað sem dróst saman um 0,5% á milli ára.“

Tekjuvöxtur var dræmur í flestum greinum. Þær jukust mest í sölu, viðgerðum og viðhaldi vélknúinna ökutækja, eða um 25,1%. Þá varð 14,7% vöxtur í sjávarútvegi og fiskeldi, þar af 15% í sjávarútvegi einum og sér.

„Í öðrum greinum var vöxturinn minni en hækkun vísitölu neysluverðs og raunar var samdráttur í ferðaþjónustu, byggingarstarfsemi, fasteignastarfsemi og málmframleiðslu.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.