Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag og minningarstundir verða haldnar víða um land af því tilefni og til að þakka viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á unga vegfarendur.
Gögn Samgöngustofu sýna að ungir ökumenn eru talsvert líklegri en þeir eldri til að lenda í slysum þó að slysum af þeirra völdum hafi fækkað talsvert síðustu ár. Hraðakstur ungmenna er helsta orsök banaslysa ungs fólks. Í gögnum lögreglu eru merki um aukna áhættuhegðun í þessum hópi og merki eru um aukinn hraðakstur.
„Það er töluvert langt síðan það var ákveðið að helga minningardaginn og umferðarþing, sem haldið var núna í haust, ungum vegfarendum. Síðan áttu sér stað náttúrulega þessi hörmulegu slys sem hafa kostað fjögur ung mannslíf og það er óhjákvæmilegt að umfjöllun dagsins í dag og áhersla muni vera á það,“ segir Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur á öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu.
Í dag ætlar Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra að kynna úrræði sem stjórnvöld hyggjast grípa til. Þau ætluð eru til að fækka slysum ungra óreyndra ökumanna. Hann flytur ávarp í Reykjavík.
Yfir fjórðungur landsmanna hefur misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi. Tólf hafa látið lífið í umferðinni á þessu ári en á síðasta ári létust tíu í umferðarslysum. Mun fleiri hafa slasast alvarlega.
Minningarstundir verða haldnar víða um landið í tilefni dagsins.
„Það hefur aldrei verið svona mikill fjöldi viðburða, hringinn í kringum landið, 17 viðburðir samtals og það er alveg óhætt að segja að þjóðin sé í rauninni að sameinast í því að minnast þeirra sem hafa látist í umferðinni og það vekur okkur bara til umhugsunar um okkar eigin ábyrgð á degi sem þessum,“ segir Einar.
