Pláss var fyrir tíu fanga í fangelsinu á Akureyri. Því var lokað að tillögu Fangelsismálastofnununar fyrir sex árum. Það þótti óhagstæð rekstrareining og kostnaður við hvern fanga þar var umtalsvert hærri en í öðrum fangelsum.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, óskaði eftir upplýsingum um áhrif lokunarinnar í skriflegri fyrirspurn til dómsmálaráðherra.
„Hvað hefur komið á móti í auknum kostnaði við flutning á föngum suður, gæsluvarðhaldsföngum og öll umsvifin. Flugið og keyrslan, hvaða áhrif hefur þetta haft á embættið og kostnað á embættið og lögregluna á Akureyri. Ég er bara mjög ósáttur við svörin sem komu vegna þess að þau komu ekkert inn á það sem spurt var um. Sem var þá fyrst og fremst fjárhagslegi þátturinn,“ segir Njáll.
Rýmin tíu myndu nýtast vel í dag
Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurn fréttastofu um áhrif lokunarinnar og hvort standi til að opna fangelsið en í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, við fyrirspurn Njáls Trausta segir að nú, þegar nýting fangelsa er mjög mikil, myndu þessi tíu rými sem var lokað á Akureyri skipta miklu máli.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var dómsmálaráðherra þegar fangelsinu var lokað og Njáll Trausti í meirihluta á Alþingi.
„Ég var þeirra skoðunar 2020 að þetta væri ekki það sem ég hefði áhuga á að sjá gerast,“ segir Njáll, þrátt fyrir að hafa verið í meirihluta. „Já það er oft þannig í pólitíkinni að maður er ekki alltaf sammála því sem er gert.“
