Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur áberandi í dómsal

Athygli vakti að áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórar sóttu réttarhöld í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum og öðrum tengdum þeim. Málið hefur vakið mikla athygli bæði á samfélagsmiðlum og í þjóðfélaginu öllu.

„Arnar gella mælir allavega sjúklega mikið með“

Áhrifavaldurinn Arnar Máni Ingólfsson, eða Arnar Æði, sem hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilega framgöngu á samfélagsmiðlum, var til dæmis mættur í dómsal og leyfði fylgjendum að fylgjast með upplifun sinni á TikTok.Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum og öðrum tengdum þeim, hefur vakið mikla athygli víða í samfélaginu. Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur voru áberandi í dómsal í vikunni.

„Ef þið vissuð það ekki getur maður farið og fylgst með máli sem er verið að taka fyrir dóm,“ sagði Arnar fylgjendum sínum.

Það er rétt hjá honum, almenningur getur fylgst með réttarhöldum nema þinghald sé lokað.

„Mér fannst þetta svo áhugavert en það var aðalástæðan af hverju ég fór. Ég var svo forvitinn að vita hvernig svona hlutir virka og ég kynntist því heldur betur í dag.“

Hann mælir með því að fleiri prófi að sitja aðalmeðferð í héraðsdómi.„Arnar gella mælir allavega sjúklega mikið með þar sem þetta var mjög áhugavert og ég geri þetta 100% aftur.“

Athygli erlendis frá og umfjöllun í hlaðvörpum

Fleiri hafa tekið málið fyrir á TikTok, meðal annars Lilja. Hún fjallar um málið á ensku og styðst aðallega við fréttir sem hafa birst í fjölmiðlum. Hún hefur ekki sjálf setið aðalmeðferðina.

Fyrsta TikTok-ið sem hún gerði um málið fór á flug og þegar þessi frétt er skrifuð hefur það fengið yfir 50 þúsund áhorf. Sjá má á ummælunum að TikTok-ið hefur farið víða um heiminn.Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum og öðrum tengdum þeim, hefur vakið mikla athygli víða í samfélaginu. Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur voru áberandi í dómsal í vikunni.

Stjórnendur hlaðvarpsins Eftirmála, og afsprengi þess Önnur mál, voru einnig viðstaddir aðalmeðferðina fyrr í vikunni.

Þær Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkelsdóttir eru fyrrverandi fjölmiðlakonur og störfuðu meðal annars sem fréttamenn á Stöð 2. Þær hafa áður fjallað um mál Írisar Helgu í hlaðvarpinu sínu. Þær töluðu við Val Grettisson, blaðamann á Heimildinni, í þriðja þætti Annarra mála þar sem hann fór yfir málið, rannsókn þess og ákærurnar á hendur Írisi Helgu.

Þær lofuðu síðan þætti í vikunni og á fimmtudag kom út þáttur þar sem þær ræddu það sem kom fram í dómsal.

Hlaðvarpið True Crime Ísland fjallaði einnig um málið í hlaðvarpsþætti þar sem Arnar Æði var gestur.

Augnablik sem hafa farið víða

Erlendis hefur færst í aukana að áhrifavaldar fjalli um réttarhöld og flytji af þeim tíðindi á sínum miðlum. Einnig hefur færst í aukana að búin séu til hlaðvörp sem fylgjast sérstaklega með réttarhöldum dag frá degi.

Áhorfendur og hlustendur virðast hugfangnir af sakamálum enda er True Crime sú tegund hlaðvarpa sem er hvað vinsælust í heiminum. Það eru hlaðvörp um glæpi sem hafa verið framdir, annaðhvort ný eða gömul glæpamál.

Samkvæmt könnun Edison Research, sem mælir hlustanir á hlaðvörpum, var True Crime fjórða vinsælasta tegund hlaðvarpa. Sé litið til Íslands eru til dæmis Morðkastið og Illverk dæmi um hlaðvörp sem fjalla um sakamál á lista yfir vinsælustu hlaðvörp hér á landi.

Áhugi á dómsmálum og réttarhöldum hefur aukist síðustu ár og það er greinileg þróun erlendis.

Hver man ekki eftir að hafa séð fjölda myndskeiða úr réttarhöldum leikarans Johnny Depp og leikkonunnar Amber Heard fyrir nokkrum árum?

Eða brot úr réttarhöldum í máli leikkonunnar Gwyneth Paltrow gegn sjóntækjafræðingi vegna skíðaferðar í Utah 2016? Brot af vitnisburði Paltrow fór eins og eldur í sinu um Internetið og vakti mikla kátínu netverja.

Málið snerist í stuttu máli um skíðaferð sem Paltrow fór í 2016. Sjóntækjafræðingurinn Terry Sanderson höfðaði mál á hendur henni og krafðist 300 þúsund bandaríkjadala í skaðabætur.

Hann hélt því fram að hún hefði skíðað aftan á sig með þeim afleiðingum að hann hafi hlotið fjögur rifbeinsbrot, heilahristing og varanlegan heilaskaða sem hafi haft áhrif á daglegt líf.

Í myndskeiðinu er Paltrow spurð hvort henni finnist ósanngjarnt að Sanderson hafi höfðað mál á hendur henni. Því svarar hún játandi. Hún er síðan spurð hvort atvikið hafi komið í veg fyrir að hún hafi getað notið frísins, sem hafi verið mjög dýrt.

„Ég missti af hálfum degi á skíðum,“ svarar Paltrow þá. Atvikið má sjá hér.

Nafngreindu þolendur

Réttarhöld yfir Diddy og Russell Brand eru nýleg dæmi þar sem áhrifavaldar hafa fjallað mikið um málin og þau verið áberandi í hlaðvörpum.

Áhrifavaldar voru til að mynda með beint streymi frá réttarhöldunum yfir Diddy og dómarinn í málinu þurfti að grípa til aðgerða til að tryggja nafnleynd þolenda sem báru vitni.

Réttarhöldin yfir honum voru ekki sýnd í beinni útsendingu heldur voru fjölmargir frétta- og blaðamenn sem greindu frá því hvað fór fram í dómsal. Þegar tvær konur sem voru þolendur í málinu stigu í vitnastúkuna og greindu frá því ofbeldi sem hann beitti þær vildu þær ekki koma fram undir réttu nafni heldur notuðu dulnefni.

Önnur kvennanna kom fram undir dulnefninu „Mia“ en áhrifavaldur sem streymdi á YouTube og hafði verið í dómsal greindi frá alvöru nafni hennar. Það var líka sett á samfélagsmiðilinn X.

Annar áhrifavaldur greindi frá nafni konu sem notaði dulnefnið „Jane“ og var fyrrverandi kærasta Combs. Lögfræðingur Jane sagði við dómarann að færslur af því tagi á samfélagsmiðlum stefni öryggi hennar og einkalífi í hættu og grafi undan þeirri vernd sem fólst í dulnefninu.

Nýlegra dæmi um mikla umfjöllun eru réttarhöldin yfir breska grínistanum Russell Brand. BBC er til dæmis með heilt hlaðvarp sem fjallar um réttarhöldin. Brand var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisofbeldi í vikunni.

Þessi mikla athygli sem sum dómsmál fá frá áhrifavöldum og á samfélagsmiðlum virðist aðeins vera að aukast.

Hér á Íslandi er þessi þróun rétt að byrja og má búast við því að fleiri dómsmál í framtíðinni eigi eftir að fá mikla athygli og umfjöllun bæði hjá áhrifavöldum og í hlaðvörpum.

Enda virðist óþreytandi þorsti fólks á sakamálum hvergi nærri slökktur.