Viðskipti með hlutabréf Bláa lónsins hófust á aðalmarkaði Kauphallarinnar í morgun. Hlutabréf félagsins hafa fallið um tíu krónur frá því markaðurinn opnaði.
Grímur Sæmundsen stofnandi og stjórnarformaður félagsins, segir að gengi félagsins geti og muni sveiflast upp og niður af ýmsum ástæðum. Það skipti félagið mestu máli að hluthafar fái ávöxtun til lengri tíma.
Einstaklingar keyptu um 40 prósent hlutafjárins í A-hluta.
Upphaflega var ætlunin að selja 30% hluta til einstaklinga en 70% til fjárfesta.
Grímur segir að áhugi almennings á að fjárfesta í A-hlutanum hafa verið í takti við áherslur félagsins.Viðskipti með hlutabréf Bláa lónsins hófust á aðalmarkaði Kauphallarinnar í morgun. Stór stund, segir stofnandi félagsins. Áhugi erlendra fjárfesta á hlutafjárútboði félagsins var minni en hann hafði vonast til.
Áhugi erlendra fjárfesta minni en vonast var til
Áhugi erlendra fjárfesta var minni en vonast hafði verið til.
Grímur segir að ástæður þess megi rekja til ytri þætta. Hann á von á að erlendir fjárfestar muni kaupa bréf félagsins á næstu misserum.
„Ástæða þess að þátttaka þeirra var minni í útboðinu sjálfu en maður kannski vonaðist til. Það var eingöngu vegna þess að þeim leið ekki nógu vel með ýmis konar óvissu, eins og skattaáform stjórnvalda og krónan er mjög sterk gagnvart erlendum gjaldmiðlum núna.“
Markmið útboðsins var að sækja 14 milljarða króna. Það tókst en umfram eftirspurn var lítil. Stjórn félagsins er sátt með niðurstöðuna, segir Grímur.
Heldurðu að verðmiðinn, 95 krónur á hlut, hafi verið rétt metinn?
„Sko, menn geta endalaust velt því fyrir sér,“ segir Grímur.
Hann segir að viðskipti upp á tugi milljarða, með bréf í félaginu, hafi verið síðasta sumar þegar félagið var óskráð. Bæði það, og kaup félagsins á Arctic Adventures, hafi gert það að verkum að 95 krónur á hlut hafi verið rétt verð.
„Þetta rétta verð varð til þess að við náðum þeim markmiðum sem við settum,“ segir Grímur.
