Áhyggjuefni hvað slökkviliðsmenn fá takmarkaða verklega þjálfun við raunverulegar aðstæður

Brýn þörf er á uppbyggingu æfingarsvæða Brunamálaskólans fyrir slökkvilið hérlendis. Hvergi er að finna aðstöðu fyrir öll lögbundin verkefni þeirra á sama tíma og faglegar kröfur hafa aukist.

Slökkviliðsmenn geta hvergi æft sig í öllum þeim verkefnum sem þeir þurfa að fást við og faglegar kröfur hafa aukist. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu HMS og Félags slökkviliðsmanna á Íslandi.

Verkefnisstjórinn Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins og formaður Félags slökkviliðsstjóra, segir ekkert æfingarsvæði bjóða upp á aðstöðu fyrir öll lögbundin verkefni slökkviliða og þau hæfniviðmið sem lögð eru til grundvallar í námskrá Brunamálaskólans og nemendum beri að uppfylla.

„Auðvitað er það áhyggjuefni að við séum með slökkvilið í landinu þar sem slökkviliðsmenn hafa fengið mjög takmarkaða verklega þjálfun.“ Niðurstaða skýrslunnar sé augljós. „Til þess að byggja upp góð slökkvilið sem geta brugðist við því sem samfélagið kallar eftir þurfa að vera til þjálfunarsvæði,“ segir Birgir.

Brunamálaskólinn eigi ekki æfingasvæði ólíkt því sem tíðkist til dæmis á Norðurlöndunum. Þar reki ríkið skólana líkt og hérlendis. „Skólar á Norðurlöndum eru með fullbúin, stór og mikil æfingasvæði. Skólinn hér hefur ekki neitt, ekkert æfingasvæði.“

Í skýrslunni sé lagt til að slökkviliðin og ríkið byggi í sameiningu upp svæði sem þau öll geti nýtt sér. Slökkviliðin þurfi að fá styrk til að byggja sameiginlegt æfingasvæði eða hvert fyrir sig.

Hingað til hafi slökkviliðin meðal annars æft sig í byggingum gerðum úr skipagámum. „Menn hafa bara verið að búa sér til það sem þeir geta eftir getu hvers liðs.“ Fram að þessu hafi liðin haft aðgang að raunverulegum byggingum til að æfa slökkvistörf en hörgull er að verða á því.

Faglegar kröfur hafi aukist til starfsemi slökkviliða á undanförnum árum en það hafi ekki haldist í hendur við þróunina. Fræðslan hafi einnig aukist að undanskilinni þeirri verklegu að sögn Birgis Finnssonar.

„Til þess að byggja upp góð slökkvilið sem geta brugðist við því sem samfélagið kallar eftir þurfa að vera til þjálfunarsvæði. Auðvitað verða að vera þjálfunarsvæði til að þjálfa þessa slökkviliðsmenn þannig að þeir geti brugðist við og líka til að tryggja þeirra öryggi,“ segir Birgir. Slík uppbygging kosti á bilinu 220 til 250 milljónir króna.

Miðað við umfangið hérlendis gætu slökkviliðin komið að uppbyggingunni. Ekki síður sé brýnt að liðin geti brugðist við stærri verkefnum í ljósi breyttrar heimsmyndar. Víða erlendis sé lagt meira fé í slökkvilið vegna hennar, eitt sé að vera góður í að bregðast við hversdagslegum viðburðum.

„En síðan séu núna meiri líkur á að stærri viðburðir geti gerst og alvarlegri, líkt og hjá stærri liðum erlendis,“ segir Birgir Finnsson. Þá sé brýnt að byggja undir daglega neyðarþjónustu svo hún geti tekist á við stærri verkefni.

„Við höfum verið að fara á vegum Brunamálaskólans með þrívíddarhermi, þar sem verið er að æfa reykköfun. Við þurfum að komast enn nær raunveruleikanum og vera í raunverulegum eldi. Það er áhyggjuefni að mörg slökkvilið og slökkviliðsmenn sem aldrei hafa komist í þær aðstæður,“ segir Birgir að lokum.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.