Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir kynferðislegar athafnir þeirra í barnalaug Laugardalslaugar.
Samkvæmt ákæru voru mennirnir staðnir að broti sínu laugardaginn 12. júní í fyrra. Þeir áttu þá í kynferðislegum atlotum á almannafæri. Samkvæmt ákæru snerti karlmaður á fimmtugsaldri getnaðarlim karlmanns á fertugsaldri með höndum og fótum. Síðan mun hann hafa veitt manninum munnmök. Þetta gerðist meðan þeir voru staddir í barnalaug Laugardalslaugar.
Mennirnir eru ákærðir fyrir brot gegn blygðunarsemi og segir í ákæru að athæfi þeirra hafi verið til opinbers hneykslis.
Ákæran byggir á 209. grein almennra hegningarlaga. Hún er svohljóðandi: „[Hver sem með lostugu athæfi særir blygðunarsemi manna eða er til opinbers hneykslis skal sæta fangelsi allt að 4 árum, en [fangelsi allt að 6 mánuðum] 1) eða sektum ef brot er smávægilegt.]“
