Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa drepið föður sinn. Maðurinn er sonur Lilju Rafneyjar Magúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins.

Maðurinn er ákærður fyrir að hafa tekið föður sinn, Hilmar Odd Gunnarsson, hálstaki og þrengt að öndunarvegi hans þar sem hann lá í rúmi sínu aðfararnótt 26. júlí, sett kodda yfir andlit hans og þrýst að og á brjóstkassa mannsins með þeim afleiðingum að föðurinn lést af völdum köfnunar.

Í ákærunni er þess krafist að maðurinn verði til refsingar, en til vara að honum verði gert að sæta öryggisvistun á viðeigandi stofnun. Þess er jafnframt krafist að hann greiði allan sakarkostnað.

Lögreglan á höfuðborgarsvæði tilkynnti í byrjun ágúst um að maðurinn hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok júlí. Í tilkynningunni sagði að andlát karlmanns í heimahúsi í Kópavogi í lok júlí væri til rannsóknar.

Vísir greindi frá því í lok ágúst að maðurinn væri sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins. Lilja Rafney greindi sjálf frá andláti eiginmanns síns og að hann hefði glímt við veikindi síðustu ár eftir hjartaáfall og heilablóðfall.

Maðurinn sem er ákærður er eldri sonur Lilju Rafneyjar og hefur glímt lengi við andleg veikindi.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.