Akureyringar gagnrýna Tenerife-flug Icelandair

Einhverjir Akureyringar fögnuðu eflaust þeim fréttum sem bárust í gær að Icelandair ætlaði að hefja beint flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust. EasyJet flýgur tvisvar í viku frá Akureyri til London og tvisvar í viku til Manchester yfir vetrartímann. Flug Icelandair bætist við haustið 2027.

„Við sjáum tækifæri á markaðnum. Við höfum heyrt af miklum áhuga á flugi til Tenerife frá Akureyri. En þetta er í fyrsta skipti sem að við bjóðum upp á áætlanaflug, alþjóðlegt áætlunarflug frá Akureyri,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju- og markaðssviðs Icelandair.

Vakti hörð viðbrögð

Í aðsendum greinum á héraðsmiðla á Akureyri lýsa bæði Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður kjördæmisins, og Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi, undrun sinni yfir vali á áfangastað. Þá hafa ýmsir tjáð sig í athugasemdum á Facebook hjá Njáli Trausta.

Athugasemdirnar og gagnrýnin lúta aðallega að dögunum sem flogið er og valinu á áfangastaðnum.

EasyJet hefur flogið frá Akureyri á þriðjudögum undanfarin ár með góðum árangri. Norðlendingar hafa nýtt flugið og tekið tengiflug frá London í sólina. Hvers vegna var ekki valinn annar dagur, spyrja norðanmenn.

Þórhallur telur að betra hefði verið að fljúga til og frá Kaupmannahöfn. Það hefði opnað á tengiflug og laðað erlenda ferðamenn til Akureyrar.

Tómas segir að þriðjudagur hafi orðið fyrir valinu því það henti flota Icelandair. Flugfélagið sé stórhuga um áframhaldandi flug til og frá Akureyri.

„Það er bara frábært að sjá þessa ástríðu sem Akureyringar hafa fyrir meira flugi á markaðinn sinn. Eitt útilokar ekki annað. Við erum algjörlega tilbúin að skoða frekari möguleika en fyrsta skrefið er alltaf að þau flug sem eru á markaðnum fyrir gangi vel.“

Tómas telur Þórhall hafa nokkuð til síns máls með erlendu ferðamennina.

„Þetta er hárrétt mat. Við gerum ekki ráð fyrir því í áætlunum okkar, Akureyri-Tenerife, að það verði margir erlendir ferðamenn. Íslendingarnir þurfa samt að komast heim aftur og við sjáum fyrir okkur að þeir fylli bakaleiðina sömuleiðis.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.