Landsmenn mega gera ráð fyrir nokkuð hlýju veðri í dag, þökk sé hæð yfir Bretlandi og lægð yfir Suður-Grænlandi. Á Austurlandi verður allt að 15 stiga hiti.
Nokkuð rignir sunnan- og vestanlands í dag en öllu meira á morgun og þá er útlit fyrir talsverða rigningu. Einnig hvessir á morgun.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Sunnan 8-15 metrar á sekúndu í dag, en hvassara í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu. Súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, annars þurrt. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi.
Sunnan 10-18 í fyrramálið og talsverð rigning sunnan- og vestantil, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Snýst síðan í minnkandi suðvestanátt með lítilsháttar skúrum, fyrst vestast á landinu. Kólnar smám saman.
