Arkitekt stingur upp á leið til að bjarga stúkunni í Laugardal

Áform hafa verið uppi um að rífa stóran hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug þar sem hún telst hættuleg samkvæmt áhættumati verkfræðistofunnar Verkís í sumar.

Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá s.ap arkitektum, leggur til að hannað verði og útfært sjálfstætt burðarkerfi fyrir skyggni stúkunnar. Stúkan hefur verið eitt helsta kennileiti Laugardals síðan 1968.

Arnhildur áréttar að stúkan sé merkilegt mannvirki, bæði frá sjónarhóli arkitektúrs og verkfræði, sem búið sé að dæma ónýtt.

Sú niðurstaða hafi kveikt með henni mótþróastreituröskun um hvort raunverulega þurfi að ganga svo langt. Hún hafi mikið reynt að finna áframhaldandi líf fyrir byggingar.

„Það er eiginlega ekki hægt að við séum alltaf að rífa eins og við gerum. Það er bara svo mikils virði bæði menningarlega og sögulega og svo efnislega í þeim byggingum sem eru til.“

Hún hafi í samvinnu við mjög reynda verkfræðinga komist að því að upprunaleg hönnun burðarvirkisins sé hvort tveggja vel gerð og vönduð. Því sé góður grunnur fyrir lagfæringar. Mikilvægt sé að halda núverandi útliti stúkunnar.

Helstu vandamálin snúi að skemmdum í mannvirkinu sem þurfi að skoða gaumgæfilega. Hérlendis og víða erlendis sé verið að laga brýr og önnur mannvirki með alkalískemmdum líkt og hrjá stúkuna. Það gæti valdið hruni og tillagan sé til að komast hjá því.

„Þá eru til aðferðir eins og að búa til ytri stoðgrind eða auka burðarkerfið sem kannski tekur yfir allt álagið af þessu gamla.“ Arnhildur segir að skynsamlegast væri að gera við stúkuna í smærri skrefum í framhaldinu.

Arnhildur segist alls ekki vilja gera lítið úr þeim rannsóknum sem gerðar voru á stúkunni eða hættunni á að hún gæti hrunið. Tillagan snúi fyrst og fremst að því að laga stúkuna þannig að hún geti staðið eins og hún er.

Í framhaldi sé hægt að gera tillögu að áframhaldandi nýtingu stúkunnar. Hún segir tímabært að breyta nálguninni og verklýsingu á því hvernig farið sé með gömul mannvirki sem þurfi að laga. „Að rífa og byggja nýtt er skortur á metnaði, fyrir utan umhverfisáhrifin af því að rífa.“

Dæmi um sambærilega nálgun sé lagfæring Stadio Flaminio í Róm þar sem gera á nýtt sjálfstætt stuðningskerfi utan við áhorfendapalla og skyggni til að varðveita upprunalegt mannvirki og bæta nýtingu þess. Arnhildur segir leikvanginn og stúkuna í Laugardal nánast eins og tvíburabyggingar.

„Allt það sem ég er að segja byggist á því að skoða þetta frá öðru sjónarhorni. Að skoða þetta án þess að ákveða fyrir fram að það þurfi að rífa þetta og að þetta verði of dýrt, heldur að gefa byggingunni smá tækifæri til að standa og sjá hvað þarf til að gera það.“

Í mati Verkís kemur fram að mesta og bráðasta hættan sé að steypubrot gætu fallið á gesti eða starfsfólk og mögulegt burðarþolshrun, sérstaklega ef súlur gefa sig undan eigin þunga.

Til stendur að rífa skyggni og áhorfendapalla svo eftir standi gufubað og aðstaða starfsfólks undir stúkunni sjálfri.

Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs segir í skriflegu svari til fréttastofu að málið sé enn til skoðunar þar. „Við erum ekki komin til lands í málinu,“ segir Einar. Undir séu miklar fjárfestingar sem bíði ákvörðunar og þær þurfi að undirbúa vel.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.