Þrátt fyrir lækkun á heimsmarkaðsverði á bensíni frá miðjum september hefur innlent bensínverð, án opinberra gjalda, ekki enn fylgt á eftir, samkvæmt greiningu Alþýðusambands Íslands (ASÍ).
Samkvæmt henni hefur meðaltal lægsta bensínverðs á Íslandi hækkað um 35% á þessu ári. Án opinberra gjalda hefur bensínverð hækkað um 40%. Í New York-höfn, sem ASÍ notar til samanburðar, hefur verð hækkað um 20% í íslenskum krónum.
Virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður tímabundið í sumar.
„Lækkun verðs á dælu í maí fór saman við áframhaldandi hækkun verðs án opinberra gjalda. Þegar skattalækkunin gekk til baka í september hækkaði verð á dælu meira en verð án gjalda,“ segir í greiningu ASÍ.
Bensínverð, án opinberra gjalda, hækkaði hratt í september á Íslandi. Sú hækkun hélt áfram í október þrátt fyrir að verð væri farið að lækka í flestum samanburðarlöndum.
„Munurinn er sérstaklega áberandi síðustu vikur tímabilsins. Frá lokum september til 9. nóvember lækkaði verð samkvæmt viðmiði Evrópusambandsins um 11%, en hækkaði um tæp 3% á Íslandi,“ segir í greiningunni.
ASÍ slær þó þann varnagla að útreikningar sambandsins byggi á meðaltali lægsta verðs hjá hverjum smásala, að frádregnum opinberum gjöldum og umreiknuðu í evrur. Því er ekki tryggt að úrtak og aðferð við meðaltalsútreikning séu að fullu sambærileg á milli landa.
