Áskrift hefur fengist í alla þá hluti Bláa lónsins hf. sem boðnir voru út í almennu útboði sem hófst á þriðjudaginn var. Áskriftartímabilinu lauk samkvæmt áætlun núna klukkan fjögur síðdegis samkvæmt tilkynningu Bláa lónsins til Kauphallarinnar.
Núverandi hluthafar voru ekki að selja sína hluti heldur var markmið félagsins að sækja rúmlega 14 milljarða króna í nýtt hlutafé. Það sagði Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri félagsins í viðtali við fréttastofu á þriðjudag.
Í útboðinu voru boðnir 150 milljónir hluta til kaups, 30 af hundraði í A-hluta þar sem almenningur fær tækifæri til að kaupa fyrir minni fjárhæðir og 70 prósent í B-hluta sem ætlaður er fjárfestum, lögaðilum eða þeim sem vilja kaupa fyrir hærri fjárhæðir.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en á mánudaginn og kauphallarviðskipti hefjist með félagið fjórum dögum síðar, 20. nóvember. Landsbankinn hf. og Fossar fjárfestingarbanki hf. önnuðust útboðið fyrir Bláa lónið.
