Hægt er að hringja í neyðarnúmerið 112 á ný úr öllum landlínum og úr flestum farsímum. Þetta kemur fram á Facebook-reikningi Neyðarlínunnar klukkan 16:10.
Kerfið lá niðri um stund frá klukkan 15 í dag. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvað olli biluninni.
Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir að tæknibilun hafi komið upp í aðalsímstöð Neyðarlínunnar. Hann segir ekki liggja fyrir hvað olli henni að svo stöddu en unnið sé að greiningu.
„En þetta er ekki árás eða neitt þannig.“
Hægt er að hafa samband við varanúmer Neyðarlínunnar 5990112 ef 112 virkar ekki.
