Athuga hvort lækkun á heimsmarkaði hafi skilað sér á dælunni

Samkeppniseftirlitið hyggst kanna hvort íslenskir neytendur hafi notið góðs af lækkandi heimsmarkaðsverði á eldsneyti. Stofnunin hefur kallað eftir upplýsingum frá olíufélögunum svo að hún geti lagt mat á þróun eldsneytisverðs með hliðsjón af verðþróun erlendis.

Samkeppniseftirlitið greindi frá könnuninni í dag. Hún tiltók að eldsneytisverð hefði byrjað að lækka hratt á erlendum mörkuðum í nóvember. „Opinberlega hafa samtök á vettvangi neytenda og launþega haldið því fram að olíufélögin hafi aukið við álagningu sína við þessar aðstæður.“

Af þessum ástæðum hefur stofnunin kallað eftir gögnum frá olíufélögunum. Hún vill komast að því hvaða breytingar hafa orðið á innkaupsverði eldsneytis og hvernig þær hafa komið fram í verðlagningu til neytenda. Það á meðal annars að leiða í ljós hvort álagning og verðmyndun hafi breyst og hvort vísbendingar séu um samkeppnishindranir.