Frumvarp um bókun 35 er á dagskrá í utanríkismálanefnd í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður málið afgreitt í dag.
Frumvarp utanríkisráðherra um innleiðingu bókunar 35 var lagt fram í september 2026 og fyrstu umræðu lauk í október, en málið fór þá til utanríkismálanefndar. Þetta er í fjórða sinn sem frumvarp um málið kemur fram á þingi.
Í frumvarpinu er lagt til að sú regla verði lögfest að ef lagasetning sem byggir á EES-samningnum og önnur lög stangast á gildi þau fyrri, nema Alþingi hafi tekið skýrt fram að svo sé ekki.
Grímur Grímsson formaður utanríkismálanefndar staðfestir að málið sé á dagskrá.
„Við erum með fund núna klukkan hálf 10 og þá verður bókun 35, eða mál nr. 134 sem varðar breytingar á lögum um Evrópska efnahagssvæðið það verður á dagskrá.“
Hann vildi þó ekkert segja um hvort málið yrði afgreitt úr nefnd í dag. Þegar þar að komi fari málið til annarar umræðu á Alþingi.
Telur samþykkt frumvarpsins geta skaðað málstað Íslands
Málið gekk til nefndarinnar í byrjun október að lokinni fyrstu umræðu á Alþingi. Eftirlitsstofnun EFTA ákvað í september að höfða samningabrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum þar sem stofnunin taldi bókunina ekki hafa verið innleidda með fullnægjandi hætti.
Í frétt Morgunblaðsins í dag er haft eftir Hildi Sverrisdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins sem situr í utanríkismálanefnd, að hún telji að samþykkt frumvarpsins geti beinlínis skaðað málstað Íslands fyrir dómstólnum.
Formenn Framsóknarflokksins og Miðflokksins hafa lýst því yfir að þeir telji að dómstóllinn eigi að skera úr um hvort Ísland eigi að innleiða Bókun 35 áður en Alþingi samþykkir frumvarp um innleiðingu hennar.
