Átta störf hafa verið lögð niður hjá Carbfix og fjögur störf færast til Orkuveitunnar, eiganda fyrirtækisins. Samskiptastjóri Carbfix segir í tilkynningu að viðskiptaumhverfi fyrirtækisins og umfang stærri verkefna hafi ekki þróast í takt við áætlanir.
Fyrirtækið hafi mótað nýja stefnu til að takast á við þessar aðstæður með því að forgangsraða verkefnum og einfalda skipulag.
„Áherslan færist í auknum mæli yfir á sérfræðiþjónustu sem byggir á tækni og hugverkaréttindum Carbfix, auk þróunar staðlaðra vara og þjónustu. Á sama tíma mun Carbfix draga úr eigin þróun og uppbyggingu stórra verkefna.“
Carbfix dælir koldíoxíði ofan í jörð og umbreytir því í stein. Það hófst sem rannsóknarsamstarf árið 2006 og ári síðar var alþjóðlegt vísindasamstarf Orkuveitunnar, Háskóla Íslands og erlendra vísindastofnana formlega stofnað.
Fyrirtækið hóf leit að fjárfestum fyrir þremur árum og í janúar á þessu ári voru þrjú lokatilboð í reksturinn til skoðunar.
Fréttin verður uppfærð.
