Skráð atvinnuleysi í október var 4,3% samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar sem birt voru í dag. Atvinnuleysi jókst því um 0,3% milli mánaða en meðalfjöldi jókst um 517 manns.
Að meðaltali voru 8.743 skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun í október, þar af voru 5.216 karlar og 3.527 konur.
Á sama tíma í fyrra mældist atvinnuleysi 3,9% hjá Vinnumálastofnun.Mannlíf í Reykjavík.RÚV / Ragnar Visage
