Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsir eftir ökumanni sem ók á dreng á rafhlaupahjóli á Mýrarvegi við Vanabyggð þriðjudagskvöldið 22. september.
Atvikið varð um klukkan 20:30 og er bifreiðin sögð hafa verið grá að lit.
Ökumaðurinn er beðinn að hafa samband við lögreglu. Þeir sem hafa upplýsingar um málið eða urðu vitni að slysinu eru einnig beðnir að hafa samband.Akureyri.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
