Auglýsingatekjur hlaðvarpa margfaldast: „Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun“

Auglýsingatekjur hlaðvarpa voru rúmlega hálfur milljarður króna í fyrra. Tekjur þeirra hafa aukist stöðugt frá 2018 og tæplega tífölduðust á milli 2020 og 2025. Samkvæmt Hagstofunni er hlutdeild hlaðvarpa um 4% á auglýsingamarkaði.

„Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun náttúrlega,“ segir Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Einnar pælingar. Hann segir þróunina ekki koma sér á óvart enda séu vinsældir hlaðvarpa sífellt að aukast.

„Það sem við búum við í hlaðvarpsgeiranum er að við höfum minni yfirbyggingu og þurfum kannski ekki að sinna því almenna hlutverki sem fjölmiðlar eru í. Þar af leiðandi getum við boðið upp á mjög góða vöru, tiltölulega ódýrar auglýsingar, fyrir mikla dreifingu.“

Þórarinn bendir á að efni frá honum sé í talsverðri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem auglýsendur geta komið merkjum sínum á framfæri.

Sjálfur hefur hann ekki þurft að hafa mikið fyrir því að selja auglýsingar.

„Ég hef reyndar búið við þann munað að þurfa að neita fólki um það að auglýsa þrátt fyrir að vilja koma inn. Ég er með mettaðan þátt hjá mér sem er náttúrlega algjör lúxusstaða.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.