Bæjarstjórn Grindavíkur hefur lýst yfir vantrausti á hendur fasteignafélaginu Þórkötlu og framgöngu félagsins gagnvart Grindvíkingum
Íbúafundur var haldinn í Gjánni í Grindavík í gær þar sem kynntar voru áætlanir Þórkötlu um sölu eigna til Grindvíkinga sem keyptar voru eftir að eldgos hófust nærri bænum.
Bæjarstjórn Grindavíkur birtir þetta í yfirlýsingu og telur að skortur sé á skilningi á aðstæðum Grindvíkinga miðað við áætlanir Þórkötlu. Tímasetningin henti ekki fjölskyldum, verð fasteigna taki ekki mið af ástandi þeirra og telur bæjarstjórn að áhættan hvíli á þeim íbúum sem fyrstir flytja í bæinn.
Bæjarbúar treysti ekki Þórkötlu
Þá er einnig undirstrikað að niðurstaða fundarins í gær hafi verið afdráttarlaus. Bæjarbúar treysti ekki stjórn og stjórnendum Þórkötlu og hafni endurkaupaáætlun félagsins í núverandi mynd. Þeir telji að félagið hafi hvorki hlustað á Grindvíkinga né sýnt aðstæðum þeirra skilning. Sú staða sé tilkomin eftir þrjú ár af því sem lýst er sem strjálum samskiptum og einhliða ákvörðunum af hálfu félagsins.
„Uppkaupin voru björgunaraðgerð í miðjum náttúruhamförum og endurkaupaáætlunin á að vera mikilvægt skref í þeirri aðgerð. Samkvæmt lögum er markmiðið að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavík. Fyrirliggjandi áætlun Fasteignafélagsins Þórkötlu virðir það markmið að vettugi, segir í tilkynningu bæjarstjórnar Grindavíkur þar sem einnig er tekið fram að bærinn og íbúar hans séu ekki að biðja um ölmusu eða neitt frítt.
„Þeir vilja að hlustað sé á sjónarmið þeirra en það hefur Fasteignafélagið Þórkatla ekki gert nema að litlu leyti,“ segir í tilkynningunni.
