Fleiri en tvö þúsund börn hafa fengið þjónustu hjá Barnahúsi á síðustu fimm árum vegna ofbeldis. Kynferðisofbeldi færist stöðugt í aukana, sérstaklega í gegnum netið. Aðgengi að börnum hefur aldrei verið auðveldara.
„Það sem er að breytast í samfélaginu er að við erum ekki bara með íslensku landamærin. Við erum líka með alla erlendu aðilana sem sækjast í börn. Þannig að í dag er það þannig að, sérstaklega á netinu, þá eru okkar börn ekkert öruggari en þau sem búa utan landamæranna,“ segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, í samtali við Kveik.
Tæplega þrjú hundruð börn höfðu leitað til Barnahúss í lok september, frá því í janúar, vegna kynferðislegs eða líkamlegs ofbeldis. Í 64 prósentum tilvika leikur grunur á að fjölskyldumeðlimur eða annar nákominn þeim hafi brotið á þeim.
„Það eru um sex til sjö prósent barna sem verða fyrir kynferðisbrotum á lífsleiðinni,“ segir Ólöf Ásta og segir tölurnar hér á pari við það sem sjáist á hinum Norðurlöndunum. Þá hafi borið talsvert á grófum málum; nauðgunum og ofbeldi sem hafi átt sér stað yfir langan tíma. Þá sé ofbeldi í gegnum netið og dreifing mynda stórt vandamál og verulegt áhyggjuefni.
„Við höfum mál þar sem grunur leikur á að börn hafi verið svæfð og það hafi verið teknar myndir af þeim. Gefin einhvers konar lyf. Það gæti verið meira af heldur en við vitum. Börnin vita þá ekki af því,“ segir Ólöf Ásta.
Fólkið sem skoðar efnið
Fólkið sem fer yfir og rannsakar slíkar myndir, barnaníðsefni á netinu, starfar hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar; Bylgja Hrönn Baldursdóttir og Hallur Hallsson. Bylgja sinnti því starfi lengi vel ein enda er hægara sagt en gert að fá fólk til starfans.
„Eins og staðan er í dag erum við með 27 mál til rannsóknar,“ segir Bylgja Hrönn.
Er það mikið eða lítið?
„Þetta er svo afstæð spurning,“ svarar Hallur. „Eitt mál gæti drekkt okkur og 27 mál verið lítil. Þau geta verið auðveld til rannsóknar og tekið skamman tíma en svo geta þau verið ofboðslega flókin og tekið langan tíma.“
Hann nefnir stórt mál sem þau eru að vinna að núna; 200 terabæt eða milljón myndir og myndskeið.
„Þetta er gríðarlegt magn stundum. Manni fallast stundum hendur,“ segir Bylgja.
Þá sé efnið sem þau þurfi að skoða af börnum á öllum aldri, stundum kornabörnum.
„Ég held að yngsta barnið sem ég hef séð myndskeið af sé… kannski eins og hálfs mánaðar. Max,“ segir Bylgja.
Þau segja starfið vissulega taka á en eru þakklát hvort fyrir annað.
„Þetta snertir alla. Það er hræðilegt þegar maður heyrir hljóðin. Það er alveg hræðilegt. Og auðvitað hefur þetta áhrif. En sem betur fer höfum við hvort annað til að spegla okkur og aðgang að sálfræðingum. Við nýtum okkur það þegar hann hnippir í mig og ég í hann,“ segir Bylgja.Barnaníðsefni flæðir hömlulaust um netið og verður sífellt grófara. Lögregla á erfitt með að ráða við umfangið. Aðgengi að börnum hefur aldrei verið auðveldara.
Vísbendingar um að Íslendingar borgi fyrir ofbeldi í beinu streymi
En áður en myndirnar koma fyrir augu Bylgju og Halls fara þær til tölvurannsóknardeildar lögreglunnar. Deildin tekur á móti, fer í gegnum og tryggir öll stafræn gögn áður en þau fara í formlega rannsókn.
„Þetta er ekki efni sem þú gleymir, þetta festist í minninu, lengi,“ segir Gunnhildur Róbertsdóttir, deildarstjóri tölvurannsóknardeildar.
Deildin sinnir verkefnum í öllum málaflokkum, fyrir allt landið, meðal annars kynferðisbrotum gegn börnum.
„Í dag erum við sex sem sinnum þessu starfi og þetta er stór málaflokkur hjá okkur, mikið af málum, stór mál.“
Eruð þið alveg að ráða við þetta?
„Alls ekki,“ svarar Gunnhildur og bendir á að teymið sinni fleiri tegundum mála. „Við myndum vilja gera betur en við þyrftum þá fleira starfsfólk.“
Gunnhildur segir að málin séu misflókin og nefnir meðal annars sérstaklega óhugnanleg dæmi um fólk sem greiðir fyrir að horfa á börn vera beitt kynferðislegu ofbeldi í beinni útsendingu á netinu. Þótt erfitt sé að ímynda sér að fólk borgi fyrir slíkt ofbeldi segir hún þetta blákaldan veruleika.
„Þú ert að kaupa þjónustu þar sem er verið að níðast á barni kynferðislega. Og þú greiðir með alls konar aðferðum og reynir þá kannski að fela það.“
Brotin fara oft fram í fátækari ríkjum, meðal annars á Filippseyjum, en kaupendurnir eru gjarnan búsettir í efnameiri löndum. Þeir sem brjóta á börnunum eru oftast einstaklingar sem þekkja börnin eða hafa þau í sinni umsjá.
„Það hafa komið upp mál hér þar sem það er grunur um að aðilar séu að kaupa slíka þjónustu,“ segir Gunnhildur.
Dómarnir „vægir miðað við viðbjóðinn“
Gunnhildur segist hafa mikla ástríðu fyrir málaflokknum. Henni er tíðrætt um mikilvægi þess að koma börnunum til bjargar, hér á Íslandi og annars staðar í heiminum og segir alþjóðlegt samstarf því skipta sköpum við rannsóknir þessara mála. Starfsfólk tölvurannsóknardeildar er ekki lögreglumenn og kemur því ekki að eiginlegum lögreglurannsóknum.
„Það er kannski vanmáttur okkar, sem sitjum bak við tölvuna, við erum ekki þarna úti að bjarga börnunum, við erum að reyna að koma fólki í fangelsi sem stundar það að búa til eftirspurn fyrir þessu,“ segir hún.
Gunnhildur fylgist grannt með því hvernig málunum lyktar í gegnum vef dómstólanna.
„En dómarnir eru bara ekki… oft sitja þeir bara ekkert í fangelsi. Oftast ekki held ég,“ segir hún.„Þetta er, kannski, mjög vægt miðað við viðbjóðinn sem er þarna bakvið.“
Finnst þér sárt að sjá það?
„Já, mjög.“
Lögreglan hefur skráð 210 brot vegna barnaníðsefnis frá árinu 2021, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. Á árunum 2021 til 2023 fóru 62 til 79 prósent brota vegna vörslu og framleiðslu til ákærusviðs, en hlutfallið var lægra þegar kom að áhorfi, 43 til 75 prósent. Stór hluti nýrri mála er enn til rannsóknar.
Á sama tímabili var ákært í 62 málum vegna barnaníðsefnis, samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara, 57 vegna kynferðislegrar áreitni gegn börnum yngri en 15 ára, 48 vegna kynferðismaka við börn á sama aldri og níu fyrir að mæla sér mót við barn í kynferðislegum tilgangi. Tölurnar segja til um fjölda mála en ekki ákæra, og í sama máli getur verið ákært fyrir fleiri en eitt brot.
Kveikur óskaði eftir upplýsingum frá dómstólasýslunni um fjölda dóma sem fallið hafa í tengslum við vörslu og dreifingu á barnaníðsefni og kynferðisofbeldi gegn börnum. Ekki var unnt að verða við þeirri beiðni. Aðeins hluti dómanna er birtur opinberlega. Þeir dómar sem hafa verið birtir og snúa einungis að vörslu, dreifingu og/eða framleiðslu efnis eru allir skilorðsbundnir.
„Klæðir mig úr fötunum og nauðgar mér“
En á bak við þessar tölur eru þolendur. Börn. Guðlaug Hildur Sigurgeirsdóttir var fjórtán ára þegar hún kynntist manneskju á netinu. Manneskju sem sagðist vera átján ára piltur.
„Hann bað um nektarmyndir sem ég sendi undir pressu. Það endaði þannig að ég hitti hann í Kópavogi eftir að hann hótaði að deila myndunum af mér á netinu,“ segir hún. „En um leið og ég hitti hann þá sá ég að hann var eldri, hann var kominn með vel af skeggi og vel þroskaður.“
Guðlaug Hildur bjó á þessum tíma á Selfossi og hafði litla reynslu af því að fara ein til Reykjavíkur. Maðurinn leiðbeindi henni hins vegar og lagði inn á hana fyrir strætó.
„Ég nefndi við hann að ég vildi ekki að hann myndi gera þessa hluti við mig, því ég hef aldrei stundað kynlíf eða svoleiðis eða hitt stráka eða neitt þannig,“ segir hún.
„Hann stóð í dyragættinni þegar ég kom og tók mig upp á háaloftið þar sem herbergið hans var. Við vorum þar í smá tíma og ég sagði við hann: „Ég vil ekki gera þessa hluti“ og hann hlustaði ekki á mig. Sagði bara:, „Það gerist sem gerist,“ sem endar með því að hann klæðir mig úr fötunum og nauðgar mér.“
„Það kemur ekkert fyrir mig“
Chastity Rose Dawson Gísladóttir á einnig sára reynslu að baki. Hún ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum og þegar hún flutti hingað til lands sem barn leitaði hún vina á netinu.
„Foreldrar mínir voru búnir að vara mig við: „Ekki skrá þig á neinar síður. Ekki vera að kynnast fólki því þú veist aldrei hver þetta eru.““
Eins og týpískur unglingur hugsaði Chastity með sér: „Það kemur ekkert fyrir mig. Ég get alveg lesið alla sem eru að reyna að ljúga að mér.“
En allt kom fyrir ekki. Hún kynntist manneskju á netinu sem sagðist vera sextán ára drengur.
„Ég treysti honum strax. Það var gott að tala við hann. Hann talaði við mig nánast á hverjum degi og það varð til þess að við ákváðum að hittast. Ég var nýbúin í fermingargreiðslu, búin að láta gera augabrúnirnar mínar sætar,“ rifjar Chastity upp.
„Hann lætur mig vita að hann búi niðri í miðbæ Reykjavíkur og ég tek strætó í miðbæinn. Þegar ég sé hann, hann var líkur sér á myndum, en það fór ekkert á milli mála að þetta var fullorðinn maður, ekki 16 ára strákur. “
Chastity var þarna fjórtán ára, hann var 25 ára.
„Ég sagði honum að stoppa. Hann hlustaði ekki.“
Hún lýsir því að hann hafi tekið mynd af henni, nakinni, í leyfisleysi.
„Og svo þegar hann var búinn að ljúka sér af sagði hann mér að klæða mig og fara.“
Átta ára börn fengin til að senda myndir
Kveikur ákvað að kanna hvernig það er að vera barn á samfélagsmiðlum og stofnaði aðgang, meðal annars á Snapchat í gervi unglingsstúlku. Og viðbrögðin leyndu sér ekki. Skilaboð og vinabeiðnir hrönnuðust inn á Snapchat-aðganginn nánast um leið og hann var stofnaður, bæði frá íslenskum karlmönnum og útlenskum, sem flestir báðu um það sama; nektarmyndir af stúlkunni. Buðust jafnvel til þess að greiða fyrir þær.
Aðgangsnafn stúlkunnar gaf til kynna að hún væri á barnsaldri en mennirnir voru sömuleiðis upplýstir um aldurinn í skilaboðum, fjórtán ára. Vinabeiðnirnar sem stúlkan fékk voru í kringum hundrað talsins á nokkrum dögum.
Spurð um það hvernig menn með barnagirnd ávinni sér traust barna í gegnum netmiðla segir Ólöf Ásta hjá Barna- og fjölskyldustofu:
„Það er ýmislegt, byrja á spjalli, bara svona ákveðin tæling, svo er talað fallega um viðkomandi og svo að ég væri til í svona, gætirðu sýnt brjóstaskoru, til unglingsstelpna og svo hóta að senda þetta, ef þú sendir mér ekki þetta þá geri ég svona og svo stig af stigi vex það. Við höfum séð allt niður í átta ára börn sem hafa verið að senda einhvers konar myndir, verið fengin til þess að gera eitthvað.“
Ólöf Ásta segir að dæmi séu um að menn séu með tugi þolenda á bak við sig, og vísar í mál sem kom upp fyrir fimm árum síðan, þar sem einn maður áreitti að minnsta kosti níutíu börn á netinu, og hlaut dóm fyrir.
Tugir sækja aðstoð vegna barnagirndar
Anna Kristín Newton er sálfræðingur sem hefur sérhæft sig í meðferðum við barnagirnd. Hún fer nú fyrir úrræðinu Taktu skrefið, sem er fyrir fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi.
„Innan þess hóps að þá höfum við verið að sinna um fimmtíu til sextíu einstaklingum á ári,“ segir hún.
Er það ekki svolítið mikið?
„Það má deila um mikið. Við myndum gjarnan vilja að fleiri myndu koma og leita til okkar. Það er að segja, við vitum að tilkynningar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum eru fleiri á hverju ári heldur en við fáum inn á borð til okkar.“
En hverjir eru það sem horfa á barnaníðsefni?
„Kannski fyrst og fremst karlmenn, það er það eina sem við getum sagt að einkenni hópinn, en þeir geta verið á öllum aldri, af öllum stéttum, á öllum stöðum.“
Anna Kristín segir augljóst að mun fleiri sjái barnaníðsefni nú en nokkru sinni fyrr. Hún tekur þó fram að það séu ekki endilega bein tengsl á milli þess að horfa á barnaníðsefni og að brjóta líkamlega á börnum.
En er þetta læknanlegt?
„Það er aftur spurt, hvað er læknanlegt. Erum við fær um að breyta hvað fólk hugsar. Ekki alltaf. En hugsanir einar og sér þurfa ekki að vera skaðlegar,“ segir Anna Kristín.
Hún bendir jafnframt á að um 30 prósent þeirra sem brjóta gegn börnum hafa sjálf orðið fyrir kynferðisofbeldi.
„Það getur mótað hugarheim þeirra á barnsaldri sem er mjög erfitt að uppræta, þetta er bæði tilfinningalegt og gildishlaðið fyrir þeim. Stundum getum við ekki breytt hverju þau hugsa en getum breytt hvernig þau hegða sér.“
Anna Kristín segir það áhyggjuefni hve auðvelt aðgengi fullorðið fólk hefur að börnum í dag.
„Þetta að geta nálgast barn, sérstaklega stálpað barn, er mjög auðvelt í dag. Og það eru margar leiðir nýttar. Það er ekki bara það að vera að horfa á eitthvað efni þar sem barn er beitt ofbeldi. Það er líka að geta sett sig í samband við barn.“
Notaði efnið sem hækju til að takast á við stress
Kveikur ræddi við mann sem glímt hefur við kynferðislegar hugsanir til barna. Hann er ekki greindur með barnagirnd en stundaði það að horfa á barnaníðsefni á netinu. Hann vildi ekki koma fram í mynd eða undir nafni.
„Í dag myndi ég lýsa mér sem fjölskyldumanni með mikinn metnað og stóra drauma,“ segir hann.
Maðurinn lýsir því að uppvaxtarár hans hafi verið frekar eðlileg en að hann hafi snemma farið að spila tölvuleiki og vafra um á netinu.
„Eins og allir vita í dag er maður aldrei langt frá klámi þegar maður er á netinu. Ég var einhvers staðar í kringum 13 ára aldurinn þegar ég komst fyrst í kynni við slíkt,“ útskýrir hann. Fljótlega var klámáhorf orðið að daglegum vana.
„Ég notaði það sem hækju til að slaka á og takast á við stress lífsins,“ segir maðurinn.
Hann leitaði í efni sem innihélt myndir eða myndbönd af ungum stúlkum.
„Það sem gerist svo er að tíminn líður og maður eldist en það klám sem þú horfir á helst eins og jafnvel verður [öfgakenndara]. Manni tekst að réttlæta þetta fyrir sjálfum sér ótrúlega lengi. Með tímanum þróast dómgreindin og sektarkenndin og maður áttar sig fullvel á því að það sem þú sért að gera sé rangt. En þá er þetta orðinn svo sterkur vani og hækja að það er ekkert grín að losa sig undan. Og þú trúir ekkert mikið að þú getir það,“ segir maðurinn.
Á sama tíma óttaðist hann að hann myndi brjóta líkamlega á barni.
„Sérstaklega ef þetta fengi að halda áfram.“
Aldrei skaðlaust að horfa á barnaníðsefni
Maðurinn leitaði sér meðferðar hjá Taktu skrefið.
„Skömmin verður gríðarleg. Þú ferð að kalla sjálfan þig verðlausa manneskju, sama hvað þú afrekar í lífinu, þá ertu ógeð sem ættir helst að gera öllum greiða og taka þitt líf. Skömmin þróast yfir í þunglyndi,“ segir hann.
„Ég fór að leita mér aðstoðar þegar ég var búinn að eignast börn. Mér fannst vera tvær leiðir í boði, annað hvort myndi ég halda þessu áfram og eyðileggja líf mitt með einhverjum hætti þ.e.a.s. þetta kæmist upp, ég færi í fangelsi, eitthvað í þá áttina eða ég myndi taka mitt líf.Ég var skíthræddur um að taka þetta skref, hvað ef einhver sæi mig? Kemst upp um þetta allt þegar ég mæti? Fer ég á einhvern lista?
Ég komst yfir það því annars yrðu börnin mín líklega án föður bráðlega.“
Maðurinn líkir áhorfi sínu við fíknihegðun.
„Aðalatriðið er að vera meðvitaður um þitt sálræna. Hugsanir blossa upp meira þegar ég er illa undir kominn, það er að segja lélegur svefn, mikið stress og slíkt. Ég lifi mjög heilbrigðum lífsstíl í dag og það styður mig í að halda þessu til haga. Ég mun aldrei falla aftur í sama farið.“
Hann segir að fólk þurfi að vita að það sé aldrei skaðlaust að skoða barnaníðsefni.
„Þú styður framköllun þessa efnis og eyðileggingu sála barna með því að horfa. Svo sé ekki minnst á skaðann sem þú ert að valda þínu eigin lífi.“
Tæplega 2 milljónir með aðgang að „Kidflix“
Fyrir rúmu ári síðan leiddi Europol mjög umfangsmiklar alþjóðlegar aðgerðir í tengslum við eina stærstu barnaníðssíðu sem uppgötvast hefur. Síðan hét Kidflix og dró nafn sitt af streymisveitunni Netflix. Og viðmótið var ekki ósvipað.
„Þú gast bara valið úr listum. Í staðinn fyrir að velja comedy eða horror þá voru það einhverjar misnotkunar undirdeildir,“ segir Hallur lögreglumaður.
Á þriggja ára tímabili höfðu 1,8 milljónir manna skráð sig á síðuna, sem hafði að geyma níutíu og eitt þúsund myndbönd með grófu kynferðisofbeldi gegn börnum. Vefurinn virkaði þannig að notendur fengu umbun fyrir að hala inn barnaníðsefni, ýmist í formi rafeyris eða svokallaðra tokens, og fengu þannig sjálfir aðgang að meira efni.
„Þú þarft annað hvort að borga þig inn eða þá geturðu deilt nýju efni og þá kemstu inn. Svona eins konar skiptikerfi. Mér skilst að það sé tiltölulega algengt sniðmát á þessum síðum,“ segir Hallur.
Lögreglu tókst að bera kennsl á 1.400 notendur síðunnar í fyrstu aðgerðarhrinu. Tveir Íslendingar voru handteknir en lögregla útilokar ekki að fleiri hafi haft aðgang að síðunni hér á landi. Mál annars Íslendingsins er enn til rannsóknar. Hinn var dæmdur í september en héraðsdómur neitar að afhenda dóminn. Slíkt er afar fáheyrt en ákvörðun dómstólsins er fullnaðarákvörðun og henni fæst ekki hnekkt.
„Fyrir fólkið á toppnum þá snýst þetta ekki um misnotkun heldur um peninga. Það eru fáránlega miklir peningar og allt sem færir því nýtt efni, það færir því meiri pening. Þannig að yfirleitt er hvati fyrir fólk að koma með nýtt efni,“ segir Hallur.
„Það eru dæmi um að brotamenn hafi ferðast um lönd og brotið á einu barni í hverju landi til að búa til einhverja seríu.“
„Stoltir pedófílar“
Heimur fólks sem hefur kynferðislegar langanir til barna er dimmur og óhugnanlegur. Inni í honum hafa myndast ákveðin samfélög, samfélög þar sem fólk með sömu kenndir kemur saman, á netinu og stundum í raunheimum, ræðir sínar þrár og langanir, og skiptist á myndum sem sýna börn beitt kynferðislegu ofbeldi. Sænski fréttaskýringaþátturinn Uppdrag granskning komst yfir upptökur sem sýna þennan heim. Rétt er að vara við lýsingunum sem fylgja hér á eftir.
Á upptökunum eru mennirnir naktir, sumir í leðurólum og ræða afslappað sín á milli um hvað þá dreymir um að gera við börn. Þeir sjást stunda sjálfsfróun á meðan á umræðunum stendur. Þeir ræða líka aldur barnanna sem þeir girnast. Þannig lýsir einn því að hann vilji helst fikta við endaþarmsop þriggja eða fjögurra ára gamals drengs.
Upptökurnar fundust á heimili manns í Svíþjóð sem var handtekinn í tengslum við rannsókn á kynferðislegu myndefni af börnum. Upptökurnar eru af Zoom og sýna barnaníðinga, víða að úr heiminum, sem kalla sig meðal annars stolta pedófíla. Svíi á fimmtugsaldri sem kallaður er Helix, stóð fyrir þessum fjarfundum.
Einn þeirra segist frekar vilja tveggja ára drengi eða jafnvel yngri og gantast með að sá sem girnist þriggja til fjögurra ára drengi geti fengið „kærastann sinn þegar hann sé orðinn of gamall.“
Þeir leggja nánar á ráðin um hvernig brjóta megi á tveggja ára drengjum. „Þeir eru enn svo ungir að þeir segja engum,“ segir einn mannanna.
Myndefnið reyndist vera innan úr stærsta barnaníðsneti sem fundist hefur í Svíþjóð, kallað Helix-network, eða Helix-netið. Mörg hundruð upptökur af Zoom-fundum fundust á dulkóðuðum, hörðum diskum, og talið er að 330 manns hafi tekið þátt í fundunum. Rannsóknin reyndist flókin, meðal annars vegna þess að Zoom neitaði að afhenda upplýsingar um notendur utan Svíþjóðar.
Lögreglu tókst að bera kennsl á og handtaka tíu Svía og fjörutíu aðra í öðrum löndum. Enginn hinna handteknu var á Íslandi. Aðeins tveir hafa hlotið dóm vegna málsins, þar á meðal Helix.
„Engin ástæða til að ætla að við séum ekki þarna líka“
„Ég held að þetta séu samfélög sem við ættum öll að hafa áhyggjur af,“ segir Anna Kristín sálfræðingur um samfélög manna með barnagirnd.
„Þau eru því miður til og fyrir þá sem sogast inn í slíkt að þá er það mjög áhættusamt enda hefur það sýnt sig að það eykur væntanlega líkur á að brotið sé á fleiri börnum. En ég held það sé mjög mikilvægt að það sé reynt að uppræta slík samfélög og stoppa þau af,“ bætir hún við.
Lögreglan hefur einnig séð inn í svona samfélög.
„Þegar nafnleysið er komið að þá hverfa allar hömlur. Fólk er að lýsa bara hvað það langar að gera, hvað það segist hafa gert,“ segir Hallur.
Gunnhildur í tölvurannsóknardeild segir að innan þessara hópa biðji menn um allt mögulegt.„Sumir vildu fá drengi, aðrir vildu fá stúlkur, og svo voru þarna grófari samskipti.“
Bara eins og að panta sér af matseðli?
„Í rauninni, bara hvað viltu.“
Hafið þið séð Íslendinga á þessum síðum?
„Ég veit af íslensku spjalli inni á svona síðum í gegnum tíðina en það hefur ekki verið neitt sem leiddi til neins,“ segir Hallur. „En það er engin ástæða til að ætla að við séum ekki þarna inni líka. “
Íslendingar lenda í gildrum
Fólk sem ætlar sér að sækja barnaníðsefni á netinu gæti lent í gildru. Lögregluyfirvöld víða um heim hafa sett upp gildrur í formi skráa með skráarheitum sem vísa til ofbeldis gegn börnum, lögreglan getur þá greint staðsetningu þeirra sem hlaða efninu niður. Við skoðuðum síðu sem norska lögreglan heldur úti og sýnir í rauntíma hvenær reynt er að hala niður barnaníðsefni. Þá birtast gulir punktar á kortinu sem sýna hvar þeir sem hala efninu niður eru. Kortið verður langskærast á laugardagskvöldum.
Á síðunni má einnig finna tölfræði. Ísland er þar í fimmta sæti í Evrópu yfir þær þjóðir sem sækja mest af barnaníðsefni, miðað við höfðatölu. Þess ber að geta að hver sem er getur fært IP tölu til Íslands og Íslendingar geta fært IP tölur sínar annað.
Myndum stolið af síðum foreldra
Þá eru fjölmörg dæmi um að raunverulegum myndum af börnum, sem til dæmis eru teknar af samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram, hafi verið breytt með gervigreind. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldisforvarna hjá Barnaheillum, hvetur foreldra til þess að velta því fyrir sér hvers konar myndum þeir deila af börnum sínum á samfélagsmiðlum.
„Það eru ákveðnir flokkar þarna sem eru eftirsóttari sem foreldrum kannski myndi ekki detta í hug að hugsa út í. Ef barn er með opinn munninn, ef barn er að krjúpa, þá er mjög auðvelt að til dæmis nota gervigreind til þess að breyta þessari mynd þannig að það er einhver fullorðinn aðili klipptur inn í myndina, nakinn og barnið krýpur fyrir neðan eða barnið er með sleikjó eða ís og það er búið að skipta því út fyrir kynfæri,“ útskýrir Kolbrún.
Bylgja og Hallur hafa aðeins orðið vör við þessa þróun.
„Við höfum fengið nokkrar myndir þar sem er verið að fjarlægja föt eða breyta myndum. Ekki verið mikið en við gerum ráð fyrir að það verði slatti,“ segir Bylgja og Hallur bætir við:
„Það er tímaspursmál hvenær þetta verður algjörlega ógreinanlegt.“
Vefsíðum með barnaníðsefni fjölgar hratt
En það er ekki að ástæðulausu að myrkravefurinn er notaður undir brotastarfsemi. Þar getur fólk hulið auðkenni sitt og fært einkennistölu tölvu sinnar, svokallaða IP-tölu, yfir í annað land eða jafnvel aðra heimsálfu. Árið 2023 fundust 235 vefsíður á myrkravefnum sem hýstu barnaníðsefni. Þeim hefur fjölgað hratt á allra síðustu árum, voru í fyrra þrefalt fleiri, yfir 700 talsins. Nær allar síðurnar voru reknar í gróðaskyni.
„Ég er nýbúin að lesa rannsókn þar sem eru viðtöl við 75 karla sem hafa allir fengið dóm fyrir að dreifa barnaníðsefni. Aðeins 9 prósent af þeim segjast hafa haft kynferðislegan áhuga á börnum til að byrja með og vera með barnagirnd. Aðrir segjast ekki hafa neinn sérstakan áhuga á börnum, þeir hafi verið forvitnir, undir mikilli streitu, erfiðleikar í hjónabandi, nýbúnir að missa vinnuna, leiðast út í þetta frá öðru klámi sem verður grófara og grófara,“ segir Kolbrún.
„Það brýtur enginn óvart gegn barni“
„Það eru margir sem halda að það að skoða barnaníðsefni sé glæpur án fórnarlambs,“ segir Kolbrún.
„Það er það ekki, þú ert að brjóta gegn barni ef þú ert að skoða barnaníðsefni. Það brýtur enginn óvart gegn barni. Það er ekki hægt.“
Hún segir mikilvægt að ræða við börn og kenna þeim mikilvægi þess að segja frá ef einhver snertir þau óeðlilega.
„Þegar kemur að líkamlegum snertingum er mjög sniðugt að kenna strax að fullorðnir eigi ekki að snerta kynfæri barna. Og börn eigi ekki að snerta kynfæri fullorðinna, aldrei. En það geta komið tilvik, ef það þarf að þrífa bleyjusvæði, setja stíl í rass eða annað slíkt. Börn eiga að fá þau skilaboð að ef fullorðinn þarf að koma við kynfæri barna að þá eigi hann að geta útskýrt það og það er aldrei leyndarmál,“ segir Kolbrún.
„Þá verður mun erfiðara fyrir fólk sem vill brjóta gegn börnum að finna barn sem þau geta treyst að segi ekki frá. Við viljum að öll börn segi frá.“
Slökkva á internetinu og henda tækjunum
Bylgja Hrönn og Hallur beina sjónum sínum að þætti snjalltækja.
„Mitt persónulega mat er að það eigi bara að slökkva á internetinu, henda öllum snjalltækjum og taka upp gamla símann,“ segir Bylgja Hrönn og Hallur tekur undir.
„Ég er pínulítið sammála þessu því ef við fáum ekki einhverja tækni sem spottar að þetta sé einhver undir átján ára, þetta má ekki, þá er engin leið að koma í veg fyrir þetta.“
Anna Kristín sálfræðingur segir mikilvægt að tryggja úrræði fyrir þá sem glíma við hugsanir eða langanir af kynferðislegum toga sem geti orðið skaðlegar.
„Og ég held að það sé eitthvað sem hefur lengi vel verið ábótavant, hafa ekki haft öruggan samastað til að geta fengið aðstoð eða geti ekki treyst án þess að vera algjörlega útskúfaðir. Útskúfun eykur hættuna á frekari brotum.“
Braut á Guðlaugu á meðan hann beið refsingar
Þolendur kynferðisofbeldis í æsku glíma í mörgum tilvikum lengi við afleiðingarnar. Sú er raunin hjá bæði Chastity og Guðlaugu Hildi.
Þær höfðu aldrei hist, ekki fyrr en þessi þáttur var gerður, en hafa þó verið í samskiptum á netinu í mörg ár. Þær eiga báðar sára reynslu að baki, reynslu sem er sameiginleg, því sami maðurinn braut á þeim báðum.
Maðurinn var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir brotið gegn Chastity og á meðan hann beið þeirrar refsingar braut hann á Guðlaugu Hildi. Fyrir það hlaut hann eins og hálfs árs dóm til viðbótar, svokallaðan hegningarauka.
Brotum hans er í dómi lýst sem alvarlegum og ófyrirleitnum.
Chastity segir að afleiðingarnar fyrir hana hafi verið mjög slæmar og að stundum hafi hún óskað þess að hafa ekki kært.
„Ég missti blóðföður minn úr sjálfsvígi. Ég var því miður líka komin í þá stöðu. Ég hugsaði ég vil frekar vera farin og ekki þurfa að upplifa meira af þessu en að þurfa að díla við þetta. En ég er allt önnur manneskja í dag, töluvert hamingjusamari en þetta er alltaf eitthvað sem er innra með mér.“
Guðlaug Hildur glímir einnig við sálrænar afleiðingar.
„Ég greindist með ofsakvíða, áfallastreituröskun. Ég var mjög opin sem barn. En eftir þetta brot er ég feimnari en allt, tala ekki við marga,“ segir Guðlaug Hildur.
Maðurinn sem braut á þeim er í dag laus úr fangelsi, býr í litlu bæjarfélagi og gengur nú undir öðru nafni. Erlendu nafni.
„Ég endaði á geðdeild eftir að hafa komist að þessu,“ segir Chastity. Ekki síst vegna tilhugsunarinnar um að rekast á hann á förnum vegi.
Þeim finnst báðum erfið tilhugsun að vita til þess að hann gangi undir öðru nafni. Nafnbreytingar einstaklinga sem brotið hafa gegn börnum þekkjast ágætlega og hafa verið umdeildar í gegnum tíðina.
Hann er samt búinn að afplána sinn dóm?
„Hann braut á börnum, hann braut á börnum og fólk sem býr við návist barnaníðinga á að fá að vita að það er barnaniíðingur í hverfinu þeirra. Þarf ekki að vita nákvæmlega hvar, en í hverfinu,“ svarar Chastity.
Bylgja Hrönn og Hallur hafa líka velt nafnbreytingunum fyrir sér.
„Hvort það er rétt eða rangt að viðkomandi fái að skipta um nafn, það er allavega óheppilegt, getum orðað það þannig,“ segir Bylgja.
„Ef þetta er svona alvarlegur málaflokkur ætti kerfið þá ekki að vera með einhvers konar eftirfylgni,“ skýtur Hallur inn í.
Ólöf Ásta hjá Barna- og fjölskyldustofu setur líka spurningarmerki við þetta.
„Það virðist vera mjög auðvelt að skipta um nafn, við höfum nýleg dæmi um það,“ segir hún. „Við þurfum að láta börnin njóta vafans og þau eiga að eiga meiri rétt en að einhver einstaklingur skipti um nafn.“
Bæði Guðlaug Hildur og Chastity upplifðu skömm og hræðslu, og báru harm sinn í hljóði. Guðlaug Hildur í tvö ár, og Chastity í nokkra mánuði.
Guðlaug Hildur segir að henni hafi létt þegar hún sagði móður sinni loks frá.
Sástu eftir því að hafa ekki sagt henni frá þessu strax?
„Já. “
Chastity hefur svipaða sögu að segja.
„Eftir að ég opnaði mig með þetta þá leið mér miklu betur, bara að þau vissu hvað væri í gangi. Þau hafa verið mínir stærstu klettar,“ segir Chastity um foreldra sína.
Skilaboð Guðlaugar Hildar til þolenda kynferðisofbeldis eru þessi:
„Ekki gefast upp. Talaðu við fólk. Ekki fela þig. Talaðu við þann sem þú treystir mest.“
Hundrað bættu stúlkunni við
Og núna í blálokin, þegar við lítum á stöðuna á Snapchat, sjáum við að það er engu logið þegar talað er um að börn séu ekki örugg á netinu.
Skilaboð og vinabeiðnir hrönnuðust inn, bæði frá íslenskum karlmönnum og erlendum. Mennirnir settu aldur stúlkunnar ekki fyrir sig og báðu flestir um það sama; nektarmyndir af henni. Buðust jafnvel til þess að greiða fyrir þær. Sumir sendu typpamyndir, frekar en skilaboð í skriflegu máli.
