Bíll hafnaði á vegriði á Hafnarfjarðarvegi

Bíll hafnaði á vegriði á Hafnarfjarðarvegi rétt norðan við Hamraborg á ellefta tímanum. Þetta staðfestir Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu. „Við erum enn að meta aðstæður þarna.“

Einn var í bílnum og ekki er vitað um ástand hans.

Einn dælubíll og einn sjúkrabíll voru sendir á vettvang. Guðjón segir að slökkvilið sé enn við störf þar.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.