Birti myndband af innbroti hjá Stjörnugrís

Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður, sem braust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, hefur birt myndband af innbrotinu á Instagram. Þar lýsir hann því sem hann telur slæman aðbúnað svína í búinu og bendir meðal annars á að nýgotnir grísir liggi víða dauðir og mörg svín séu með legusár.

„Ég er staddur hérna á svínabúi á Kjalarnesi þar sem í kringum mig eru hundruð svína sem eru að þjást, allt lífið sitt, inni í þröngum búrum. Þau fá aldrei að fara út, þau fá aldrei að sjá sólina, þau fá aldrei að finna fyrir grasi, það eina sem þau þekkja er bara þjáning,“ segir Einar Logi í myndbandinu sem sjá má hér fyrir neðan.

Við vörum við myndefninu.Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem braust inn í bú Stjörnugríss á Kjalarnesi, hefur birt myndband af innbrotinu á Instagram. Þar lýsir hann því sem hann telur slæman aðbúnað svína í búinu.

Einar Logi hvetur fólk til að hætta að borða svínakjöt í myndbandinu.

Brotist var inn í svínabúið í maí, dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin. Mörg svín meiddust og var lógað.

Lögregla segir að karlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn. Hann hefur játað sök. Innbrot og eignaspjöll sem maðurinn játar á sig voru í búi Stjörnugríss á Kjalarnesi og á alifuglabúi Reykjabúsins í Mosfellsbæ. Hann játaði einnig á sig innbrot í alifuglabú og svínabú á Suðurlandi og Kjalarnesi.

Innbrot hafi valdið því að fjöldi dýra meiddist og drapst, sem sé aldrei réttlætanlegt.

Ekki hefur náðst í Geir Gunnar Geirsson, forstjóra Stjörnugríss. Haft er eftir honum á Vísi að Einar Logi stilli sjálfum sér upp sem dýrlingi í myndbandinu en hann hafi svo framið hryðjuverk á dýrunum. Mála megi allt upp í slæmu ljósi hvort heldur er skóla, elliheimili, leikskóla eða landbúnað.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.