Þrjár kindur hefðu hlotið sorglegan dauðdaga ef ekki hefði verið fyrir sjö manna flokk frá björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi. Ærnar hröktust út í Hamarsá og bárust niður með ánni þar sem þær festust í skúta niðri í gili þangað sem enginn kemst nema með miklum tilfæringum.
Stefndi í að kindurnar myndu kútveltast niður fossinn
Rjúpnaskyttur komu auga á eftirlegukind með tvö lömb á Hamarsdal á laugardag og létu vita. Í gærmorgun hugðist eigandinn sækja féð en Hamarsdalurinn er erfiður. Hann er mjög gilskorinn með stöllum og fossum. Kindurnar lentu út í Hamarsá, kútveltust niður ána og nálguðust Einstigsfoss. Rétt fyrir ofan fossinn tókst þeim að klóra í bakkann og koma sér inn í hellisskúta. Þar var vistin vond og sjö manna hópur frá Björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi var ræstur út.
„Þær náðu að komast upp á einhvern stall þarna inni í skútanum og þorðu ekkert að hreyfa sig þaðan. Þær voru svona hálfar á kafi. Þær hefðu ekkert lifað mjög lengi þarna held ég. Köld áin og kviðurinn alveg á kafi í vatni,“ segir Ingi Ragnarsson formaður Báru.
Eftirlegukind með tvö lömb hraktist út í Hamarsá um helgina og lenti þar í sjálfheldu á mjög erfiðum stað, í hellisskúta ofan í gili. Sjö menn frá Björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi sigu niður með kajak til að frelsa þær úr prísundinni.
Stýrðu kindunum á sundi upp ána aftur
Þessi blauti og kaldi skúti er svo óaðgengilegur, niðri í bröttu gilinu, að Ingi veit ekki til þess að þangað hafi nokkur maður komið. Þar drukknaði fullorðin kind í fyrra. Nú þurfti að skjóta þangað siglínum og brölta niður með kajak.
„Svo fóru menn á kajaknum yfir í skútann. Það var klaki fyrir skútanum fyrst sem við þurftum að brjóta frá, svona klakaspöng. Hann er alveg sjö metra djúpur þessi hellir. Síðan fóru menn inn í hellinn og náðu kindunum og bundu utan um þær. Þær voru ekki dregnar á kajaknum; þær synda náttúrulega að einhverju leyti. Þannig að þeim var bara stýrt upp ánna og á góðan stað þar sem var auðvelt að ná þeim upp. Síðan var bara farið með spottann yfir aftur og næsta tekin. Þannig að það gekk alveg mjög vel þegar var búið að komast að þeim. Þær voru bara mjög sprækar, kindin sérstaklega. Hún ætlaði að taka sprettinn í burtu, ef hún hefði ekki verið sett inn í bíl,“ segir Ingi Ragnarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Báru á Djúpavogi.
