Landsmenn geta flestir búist við frekar rólegu veðri í dag og víða verður bjart. Þó verður hvasst við suðurströndina fram undir morgun og búast má við stöku skúrum eða slydduéljum við suðaustur- og austurströndina.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en hvassara við suðurströndina fram undir morgun. Víða bjart, en stöku skúrir eða slydduél við suðaustur- og austurströndina. Norðlæg átt og slydduél eða él norðanlands í kvöld.
Norðaustlæg eða breytileg átt 5-10 á morgun og stöku slydduél, en þurrt að kalla vestanlands. Frost 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðantil, en hiti kringum frostmark við suðurströndina.
