Forvarnir, ráðgjöf og stuðningur við þolendur eru mikilvæg skref í baráttunni gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.
Viðfangsefni Kveiks í gærkvöld var kynferðisbrot gegn börnum.
Kynferðisofbeldi færist stöðugt í aukana, sérstaklega í gegnum netið, og aðgengi að börnum hefur aldrei verið auðveldara.
Börn beitt tælingu og ofbeldi
Börn eru í auknum mæli beitt tælingu, kynferðislegu ofbeldi og fjárkúgun á samfélagsmiðlum segir Indíana Rós Ægisdóttir, kynfræðingur og verkefnastýra Jafnréttisskólans hjá Reykjavíkurborg.
„Það er kannski verið að spjalla við einhvern ungling, þykjast vera jafnaldrar og eitthvað svona voða sætur einstaklingur. Biður kannski um einhverjar kynferðislegar myndir. Svo bara um leið og myndin er komin hefst fjárhagslega kúgunin eða annars konar hótanir.“
Fræðslumyndband um netöryggi og rauð flögg í samskiptum
Fyrr á árinu gerðu RÚV, Jafnréttisskóli Reykjavíkur og Samfélagslögreglan á höfuðborgarsvæðinu fræðslumyndband.
Í myndbandinu er farið yfir netöryggi og rauð flögg í samskiptum á samfélagsmiðlum og tölvuleikjum sem geta leitt til tælingar.
Indíana segir mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín, í forvarnarskyni, um þær hættur sem fylgja samfélagsmiðla- og netnotkun.
Í því samtali eigi ekki að banna börnum eða unglingum, heldur að þau viti að þau geti leitað til foreldra geri þau mistök í samskiptum.
„Við viljum að samtalið sé þannig að þó að þau ruglist og misstígi sig og geri kannski eitthvað sem þau hefðu ekki átt að gera. Að þau geti komið og talað við okkur um það.“
Indíana segir að varast eigi að koma inn skömm eða hræðslu hjá börnum og unglingum við að segja frá því sem þau lenda í.
„Þetta er ekkert sem börn ættu að þurfa að eiga við alein.“
Hún segir aðgengi að klámi og ofbeldi á samfélagsmiðlum vera mikið og auðvelt sé að lenda á slíku efni.
Veita þurfi börnum og ungmennum kynfræðslu og miðlalæsi í meira mæli en nú er gert.
Ofbeldi ekki að minnka með nýjum kynslóðum
Stígamót hafa veitt þolendum kynbundins og kynferðislegs ofbeldis ráðgjöf og stuðning í 36 ár. Drífa Snædal er talskona þeirra.
Til Stígamóta geta brotaþolar leitað, eldri en 18 ára. Samtökin bjóða einnig upp á netspjall á vefsíðunni http://www.sjukast.is og stuðningshópa.
Hefurðu orðið vör við breytingar á ykkar skjólstæðingum eða ykkar starfi undanfarin ár?
„Við verðum vör við breytingar með tilkomu internetsins, klámvæðingar og auknu aðgengi að börnum í gegnum netið,“ segir Drífa.
Drífa segir mikilvægt að hafa í huga að stafrænt ofbeldi geti haft jafn miklar afleiðingar og ofbeldi í raunheimum.
„Það lítur þannig út frá okkar bæjardyrum séð að ofbeldi sé ekki endilega að minnka með nýjum kynslóðum. Síðan er rosalega mikilvægt að hafa það í huga að ofbeldi á netinu, þó að þú hittir aldrei viðkomandi en þú ert kannski plötuð í að senda myndir eða eitthvað slíkt.“
Hvað er hægt að gera?
„Það sem er mjög mikilvægt að gera er að einbeita sér að forvörnum, koma í veg fyrir ofbeldi.“
Besta leiðin til þess er að setjast niður með ungu fólki, segir Drífa.
Drífa hvetur þá sem þurfa á aðstoð að halda til að leita til Stígamóta.
„Ekki smætta eigin vanliðan í kjölfar ofbeldis. Endilega leitaðu þér aðstoðar.“
