Breyttu bréfaklemmu í verðmætt málverk

Nemendur í MBA-námi við Háskólann í Reykjavík byrjuðu með nánast verðlausa bréfaklemmu og áttu að auka verðgildi hennar, og svo annarra vara, með vöruskiptum.

Hugmyndin kemur frá Kanadamanni sem tókst, árið 2005, í fjórtán vöruskiptum að breyta rauðri bréfaklemmu í hús. Í vöruskiptunum reynir á hugmyndaauðgi og samningatækni nemenda en peningar eru ekki leyfðir.

Það tók nemendurna þrjár vikur að fara í gegnum átta vöruskipti. Vöruskiptin leiddu til þess að á laugardaginn verður málverk eftir Tolla sett á uppboð.

Ágóðinn fer til samtakanna Börn með krabbamein.