Brotið á rétti Tómasar þegar hann var áminntur

Landspítalinn fór ekki að lögum þegar hann áminnti Tómas Guðbjartsson lækni vegna myndatöku og myndbirtingar. Þetta er niðurstaða Kristínar Benediktsdóttur, umboðsmanns Alþingis.

Landspítalinn áminnti Tómas fyrir að taka myndir af sjúklingi í hjartaþræðingarstofu spítalans og fyrir að birta mynd úr skurðaðgerð á Facebook-síðu sinni.

Umboðsmaður segir að ákvörðun Landspítalans um áminningu ekki vera í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Auk þess hafi málsmeðferðin verið verulegum annmörkum háð.

Vísir greindi fyrst fjölmiðla frá áliti umboðsmanns.

Spítalinn afþakkaði einnig vinnuframlag Tómasar vegna þessa. Umboðsmaður Alþingis segir að sú ákvörðun hafi hvorki samrýmst kröfum sem leiða megi af óskráðri meginreglu um meðalhóf né skýrleikareglu. Auk þess segir hún að tafir sem urðu á meðferð hluta máls Tómasar hjá Landspítalanum hafi ekki verið réttlætanlegar. Þær hafi því brotið gegn málshraðareglu stjórnsýslulaga.

Í svari Landspítalans við fyrirspurn fréttastofu segir að stofnunin taki áliti Umboðsmanns Alþings alvarlega og sé með það til ítarlegrar skoðunar.

Fréttin verður uppfærð.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.