Byrja að undirbúa hrekkjavökuna í ágúst

Mörg hundruð manns mæta í draugahús í Kópavogi á hrekkjavöku ár hvert, enda fara húsráðendur alla leið við að gera heimilið eins hræðilegt og kostur er.

„Við byrjum að skipuleggja einhvern tímann í ágúst,“ segir Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir, draugahúsráðandi í Kópavogi. „Við erum búin að vera allan daginn í gær og í dag alveg á fullu að setja þetta upp en þetta er líka gaman sko, við værum ekki að gera þetta nema þetta væri gaman.“

Það er farið alla leið? „Já, það er svo leiðinlegt að gera eitthvað sem er ekki alla leið.“

Mesti kostnaðurinn er við að kaupa nammi fyrir alla. „Ég myndi giska að það væru að koma 400-600 manns, en það gætu verið fleiri.“

Það eru ekki bara draugahús sem trekkja að á þessum degi. Í Húsaskóla í Grafarvogi flykktust börn í alls kyns búningum á hrekkjavökuball.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.