Covid-greiningar ekki fleiri síðan í ágústlok 2024

Greiningum á covid-19 fjölgaði í fyrstu viku nóvembermánaðar og hafa ekki verið fleiri síðan í ágústlok 2024. Þrjátíu og tveir greindust með kórónuveiruna, samkvæmt mælaborði landlæknis, af þeim tengdist tæplega helmingur hópsýkingu sem kom upp á einni deild Landspítalans.

Að sögn embættis landlæknis greindust ellefu á bráðamóttökum, sem gefi til kynna að covid-19 hafi náð meiri útbreiðslu í samfélaginu. Inflúensutilfellum fjölgaði einnig líkt og þeim sem lágu á Landspítala með öndunarfærasýkingu, en af þeim voru flestir með covid eða inflúensu.

Ekki var mælt með covid-19 bólusetningum samhliða inflúensubólusetningarátaki haustsins að því er segir í nýjum Farsóttarfréttum, fréttabréfi sóttvarnalæknis. Það hafi þó gert mikið gagn við að draga úr alvarlegum veikindum og álagi á heilbrigðisþjónustu frá árinu 2021.

Ekki var heldur bólusett síðasta haust og áhrifa þess gætti nánast ekkert í álagi vegna kórónuveirutilfella hingað til, að því er segir í fréttabréfinu. Bóluefni sem til er í landinu fyrnist fyrir áramót. Fyrir helgi var greint frá tímabundnu heimsóknarbanni á Landakoti vegna smita á einni deild.

Fréttin var uppfærð með upplýsingum úr fréttabréfi sóttvarnalæknis og heimsóknarbanni á Landakoti.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.