Fimm menn voru í morgun sakfelldir fyrir fíkniefnasmygl. Þeir reyndu að koma tveimur kílóum af kókaíni og nær ellefu kílóum af amfetamíni fram hjá tollvörðum og lögreglu. Fíkniefnin földu mennirnir í húsbíl sem þrír mannanna komu á frá Hollandi.
Kristinn Hólm Runólfsson og Kristinn Már Viðarsson voru dæmdir til sex ára fangelsisvistar. Kishan Mohabier-Panday hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm og þeir Sandeep Shiva Kamal Singh og Makesh Odeai hlutu fjögurra ára dóm hvor um sig.
Allir sættu gæsluvarðhaldi frá 30. maí og dregst það frá fangelsisrefsingunni.
Hollenska lögreglan óskaði upphaflega eftir aðstoð íslensku lögreglunnar þar sem hún hafði komist að því að til stæði að smygla miklu magni fíkniefna til landsins. Lögreglan hér á landi fylgdist með fundum tveggja Íslendinga og þriggja Hollendinga. Nokkru seinna voru fíkniefnin flutt frá Hollandi til Íslands.
Sakborningarnir neituðu allir sök. Íslendingarnir kröfðust frávísunar ákæru en þeim varð ekki að ósk sinni.
Útlendingarnir kváðust ekkert hafa vitað af fíkniefnunum í bílnum og sögðust aðeins hafa verið komnir til að skoða landið. Dómarinn tók þær skýringar ekki trúverðugar.
„Að öllu framangreindu virtu og með hliðsjón af þeirri staðreynd að ákærðu óku rakleiðis frá Seyðisfirði til Reykjavíkur, fram hjá ýmsum helstu náttúruperlum Íslands og nánast án þess að stoppa og þá aðeins til að sinna brýnustu nauðsynjum, verður að telja að framburður ákærða um að þremenningarnir hafi einungis verið hingað komnir til að skoða náttúru Íslands sé ótrúverðugur, sbr. 115. gr. laga nr. 88/2008, jafnvel þótt framburður ákærða hafi að sumu leyti verið trúverðugur.“
