Dálítil væta með köflum

Vindátt verður suðlæg eða suðvestlæg, víða 5-13 m/s, í dag. Víðáttumikil hæð vestur af Írlandi stjórnar veðrinu á landinu í dag. Það verður dálítil væta með köflum en lengst af þurrt á Norðaustur- og Austurlandi.

Þetta kemur fram í hugleiðingu veðurfræðings Veðurstofunnar.

„Það hlýnar smám saman, hiti yfirleitt 4 til 9 stig seinnipartinn. Í kvöld gengur úrkomubakki inn yfir vesturhluta landsins með samfelldri rigningu.“

Veðurhorfur á landinu á morgun:

Á morgun beina lægð yfir Suður-Grænlandi og hæðin við Bretlandseyjar til okkar hlýrri suðlægri átt, víða kaldi eða strekkingur en allhvasst í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu. Áfram súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir austan.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.