Deila um meinta offóðrun villtra fugla

Dýravaktin ætlar ekki að verða við óskum Reykajvíkurborgar og þriggja annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um að draga úr fóðurgjöfum til villtra fugla í vetur. Sérfræðingar á vegum sveitarfélaganna telja gjafirnar of umfangsmiklar og geta skaðað fuglalíf.

Minnisblað Dýraþjónustu Reykjavíkur og umhverfis- og skipulagssviða Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðarbæjar og Seltjarnarnesbæjar var lagt fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar í gær.

Þar segir meðal annars að fóðurgjafir Dýravaktarinnar séu mun umfangsmeiri en kynnt var í upphafi. Dýravaktin hefur fóðrað villta fugla á fjórtán stöðum á höfuðborgarsvæðinu síðan 2022. Sjálfboðaliðar samtakanna fóðra fuglana á þessum stöðum daglega í fimm mánuði yfir vetrartímann.

Sérfræðingar sveitarfélaganna telja að það geti haft neikvæð áhrif á fuglalíf að fóðra þá daglega um margra mánaða skeið utan tímabila þar sem aðstæður kalli sérstaklega á það.

Meðal neikvæðra áhrifa sem talin eru upp í minnisblaðinu eru hraðari útbreiðsla sjúkdóma vegna aukinnar hópamyndunar fuglanna og neikvæð áhrif á atfeli og vatnsgæði.

Fuglafóðrun Dýravaktarinnar kostar minnst 5 milljónir króna yfir veturinn. Samtökin eru rekin með frjálsum framlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum, en sveitarfélögin hafa líka styrkt þau. Í minnisblaði sveitarfélaganna segir að ekki séu forsendur til að veita verkefninu fjárhagslegan stuðning.

Eftir kynningu frá Dýraþjónustu Reykjavíkur á fundinum lagði umhverfis- og skipulagsráð borgarinnar fram bókun þar sem segir að mikilvægt sé að leita samstarfs við Dýravaktina sem hafi sýnt fuglalífi á höfuðborgarsvæðinu mikla umhyggju.

Gefa fjórfalt meira fóður en borgin

Meðal staða þar sem Dýravaktin fóðrar villta fugla er Reykjavíkurtjörn. Þar gefa sjálfboðaliðar fuglunum 25 til 40 kíló af fóðri daglega.

Í minnisblaði sveitarfélaganna segir að Reykjavíkurborg hafi biðlað til Dýravaktarinnar að draga úr fóðurgjöfum þar sem þær fari fram daglega og á fundi var samtökunum tilkynnt að Dýraþjónusta Reykjavíkur myndi fóðra fugla á Reykjavíkurtjörn þegar þörf væri á. Miðað er við að þjónustan gefi 3 til 10 kíló af fóðri þá daga sem þörfin er mest, við mestu frosthörkurnar.

Dýravaktin hefur haldið gjöfum sínum við Reykjavíkurtjörn áfram. Í yfirlýsingu frá Dýravaktinni vegna minnisblaðsins er því mótmælt að möguleg neikvæð áhrif fuglafóðrunar séu látin réttlæta að draga úr stuðningi við vetrarfóðrun án þess að staðbundið mat á fæðuþörf fuglanna sé lagt fram.

Samtökin segjast frá upphafi hafa ráðfært sig við innlenda fuglavistfræðinga og fuglafræðinga sem þekki sérstaklega sögu og lífríki Reykjavíkurtjarnar. Þá hafi þau notið samstarfs og ráðgjafar fuglafræðinga, dýrahirða og dýralækna hjá Wildlife and Wetland Trust í Bretlandi, og dýralækna Matvælastofnunar.

„Starfið hefur þróast með þessari ráðgjöf og reynslu sjálfboðaliðanna,“ segir í yfirlýsingunni.

Dýravaktin óskar efir gögnum að baki fullyrðingum minnisblaðsins og raunverulegu samstarfi um lausnir.

„Fuglarnir treysta á okkur. Við ætlum að halda áfram að tala máli þeirra og vinna að velferð þeirra.“

Yfirlýsing frá Dýravaktinni