Ákæruvaldið rannsakaði gögn í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur ekki til þaula, að mati Helgu Völu Helgadóttir verjanda Írisar Helgu. Hún er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum og öðrum tengdum þeim. Aðalmeðferð lauk í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Helga Vala krefst þess að Íris Helga verði sýknuð í öllum ákæruliðum.
Má ekki gefa magnafslátt af sönnunarkröfu
Málflutningur ákæruvaldsins stóð í 90 mínútur. Verjandi fékk svipaðan tíma til að flytja sitt mál. Meðferð rafrænna gagna var áberandi í umfjöllun Helgu Völu, verjanda Írisar.
Helga Vala tók undir það sem saksóknari og réttargæslumenn hafa sagt við málflutning í morgun: málið sé umfangsmikið enda ákæruliðir tæplega 70 talsins og brotaþolar níu.
Hún lagði þó áherslu á að meta þyrfti hvern ákærulið fyrir sig og skoða hann með tilliti til sektar eða sýknu.
„Dómari má ekki gefa magnafslátt á sönnunarkröfu vegna fjölda ákæruliða. Það þarf að vera hafið yfir skynsamlegan vafa að hún hafi framið brotið.“
Íris Helga hefur viðurkennt tiltekin verk fyrir dómi.
Helga Vala hnaut að tímamörkum ákæruvaldsins og sagði sett fram loðin og víðfeðm tímamörk á brotunum.„Í stað þess að styðja málið með gögnum hefur ákæruvaldið ákveðið að kasta út veðfeðmu neti.“
Það sé ekki í hlutverki Írisar Helgu að fylla upp í eyður ákæruvaldsins. „Sönnunarbyrðin hvílir á ákæruvaldinu.“
Segir ákæruvaldið ekki hafa rannsakað gögn til þaula
Verulegur hluti sakargiftanna gegn Írisi Helgu varðar rafræn gögn. Hún er sökuð um að hafa stofnað margvíslega reikninga á samfélagsmiðlum, undir eru einnig tölvupóstsamskipti og fjöldi rafrænna skjala.
Að mati Helgu Völu, verjanda Írisar, brást lögregla í frumrannsókn varðandi rafrænu gögnin. Hún sagði fleiri hafa haft aðgang að tækjum Írisar, tölvum og snjallsíma, en aðeins hún.
Íris Helga kannist ekki við þá aðganga sem fundust í tækjum hennar.
Helga Vala gagnrýndi rannsókn lögreglu, þá sérstaklega varðandi tækin. Hún gerði þá kröfu fyrir hönd Írisar Helgu að sími hennar og tæki yrðu borin saman við síma notenda. Auðvelt hefði verið að skoða hvort sími hennar hafi verið nálægt tækjunum í hvert sinn.
Í stað þess hafi lögreglan tekið nokkurs konar ljósrit af tækjunum en ekki kannað hvort einhver annar en hún hafi komist í þau. Eins hafi netbeinir (e. router) Írisar ekki verið kannaður.„Þessar skyldur til rannsóknar vanrækti lögreglan á Suðurnesjum algjörlega.“
Sími Írisar Helgu var afritaður en ekki rannsakaður á sínum tíma með tilliti til fjaraðgangs, að sögn Helgu Völu. Síðar hafi verið skoðað hvort tækið hafi borið með sér ummerki fjaraðgangs.
Gögn í málinu, sem tengjast fyrsta ákærukafla ákærunnar, hafi ekki verið könnuð með tilliti til fjaraðgangs. Til dæmis hafi lögregla ekki rannsakað tæki þeirra einstaklinga sem héldu til á heimili Írisar Helgu, meðal annars barnsföður hennar. Hún krafðist þess að dómari meti hvort það standist rannsóknarskyldu ákæruvaldsins.
„Ákæruvaldið rannsakaði ekki gögnin til þaula, það er, það gat einhver annar nýtt sér aðgang að tölvu hennar með fjaraðgangi, næraðgangi eða netbeini.“
Helga Vala benti á að það liggi ekki fyrir hver hafi staðið að sendingu sumra skilaboðanna, né hver hafi tekið á móti sumum sendingum.„Ef það liggur ekki fyrir í gögnum sem ákæruvaldið leggur fyrir dóm þá er það einfaldlega ósannað.“
Hún benti á að huglæg afstaða vitnis sanni ekki hver sendi skilaboð og að það sé ekki móttakandans að skilgreina hver sendi þau heldur ákæruvaldsins að sanna það.
Vitni og brotaþolar ræði öll við hvort annað og auk þess blandist fjölmiðlaumfjöllun inn í málið. Fréttastofa hefur fjallað um þá miklu athygli sem málið hefur fengið.
„Íris Helga kannast við að hafa átt í samskiptum við hluta hópsins. Dómari stendur frammi fyrir því að fletta í gegnum 2000 blaðsíður af gögnum og fletta í gegnum myndir og skjöl sem liggja fyrir og dómari þarf að meta hvort fram sé komin sönnun um að öll umrædd skilaboð komi frá ákærðu.“
Helga Vala sagðist telja að ákæruvaldið hefði misst sjónar af því að leiða hið sanna og rétta í ljós.
Linnulaus opinber umræða
Hún bendir á að linnulaus opinber umræða hafi fylgt málinu og leggur áherslu á að horft sé á málið heildstætt og þá heift sem hefur verið í umræðunni. Dómari eigi eftir að lesa í það með gagnrýnni augum hvað hvert og eitt vitni hefur lagt til málsins.
Eins og fram kom ofar fer hún fram á að Íris Helga verði sýknuð í öllum ákæruliðum. Sú krafa sé byggð á því að hún hafi verið samvinnuþýð og meðal annars stöðug í sínum framburði frá fyrstu skýrslu.
Hún segir ómennskt álag hafa verið á Írisi Helgu og það sé staðfest af geðlækni. Hún hafi verið lasin og illa sofin í skýrslutöku „en samt greint frá með bestu getu.“
Það fyrsta sem ákæruvaldið bar undir Írisi Helgu var atvik sem á að hafa gerst 2022. Þá var hún sökuð um að hafa farið að heimili eins brotaþola með krukku sem hún sagði að innihéldi fóstur sem hún hefði misst eftir að hafa gengist undir þungunarrof. Við aðalmeðferðina neitaði Íris Helga þessu.
Helga Vala benti á það við málflutning í dag að engin gögn finnist sem sýni að umrædd krukka hafi borist brotaþolanum.
„Hann man það heldur ekki við skýrslutökur. Það eru engar myndir sem styðja móttöku krukkunnar.“
Hún sagði nú þegar búið að sakfella Írisi Helgu.
„Það er búið að sakfella ákærðu fyrir utan þennan dómstól, það eru allir með á hreinu að hún hafi gert þetta.“
Íhuga eigi að gera henni ekki upp refsingu verði hún sakfelld
Fölsk dánartilkynning birtist í Morgunblaðinu í apríl um einn mannanna sem Íris Helga er sökuð um að hafa stundað umsáturseinelti gegn.
Helga Vala benti á að lögregla hefði ekki sýnt fram á hver hefði keypt og borgað fyrir birtingu dánartilkynningarinnar.
Helga Vala sagði það ekki vera skilyrði að hver einstök athöfn sé metin refsiverð sjálfstætt. Lögin heimili heldur ekki óstaðfestar ásakanir eða óstaðfest gögn.
„Krafa um sýknu er vegna þess að ákæruvaldinu tókst ekki að sanna sakarefni í 63 ákæruliðum.“
Hún sagði refsingu verða að miðast við sannaða sök, ekki viðbrögð almennings og þá gríðarlegu athygli sem málið hafi fengið. Málið hafi ekki haft góð áhrif á Írisi Helgu. Meðal annars hafi verið hrópað á hana úti á götu og Helga Vala sagði geðræna heilsu hennar ekki góða.
Það kom einnig fram í máli hennar að Íris Helga væri sakhæf. Matsmaður hafi metið hana sakhæfa fyrir dómi á föstudag en þá var þinghald lokað. Sálfræðingur sem Íris Helga hafi verið hjá lengi hafi sagt hana með viðvarandi áfallastreituröskun.„Íhuga eigi alvarlega að gera ákærðu ekki upp refsingu verði hún fundin sek.“
Helga Vala krafðist þess fyrir hönd Írisar Helgu að refsing verði að öllu leyti skilorðsbundin, verði hún sakfelld.
Aðalmeðferð í málinu er þar með lokið. Miðað er við að dómar séu kveðnir upp innan fjögurra vikna, en þó eru dæmi um að það taki 6 til 8 vikur.
