Drógu verulega úr fjárfestingu

Hagnaður íslensks sjávarútvegs nam 51 milljarði króna í fyrra. Tekjur jukust um 12% á milli ára þrátt fyrir hækkun opinberra gjalda. Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdastjóri samtakanna.

„Ég held að við getum sagt að þetta sé ágætisniðurstaða í tiltölulega erfiðu árferði. Árið var með ágætum hvað villta fiskinn varðar en við sjáum hins vegar að þrátt fyrir að afkoman sé ágæt þá er hún hins vegar sú næstlægsta á síðastliðnum fimm árum. Og opinber gjöld aldrei verið hærri á þessu tímabili,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Sjávarútvegurinn dró verulega úr fjárfestingum árið 2025. Heiðrún Lind segir það áhyggjuefni.

„Við getum alveg velt því fyrir okkur hvort ekki geti verið samhengi þarna á milli, að gjaldtakan sé þá mögulega orðin þannig að það sé farið að draga töluvert og verulega úr fjárfestingu þannig það bitni þá á verðmætasköpun til lengri framtíðar, sem ég held að sé ekki markmið neins, hvorki atvinnulífsins né stjórnvalda.“

Arðgreiðslur í sjávarútvegi námu 16,8 milljörðum króna í fyrra. Það eru minnstu arðgreiðslur í fimm ár.

Afkoma fiskeldis versnar

Þá segir Heiðrún Lind að niðurstöður afkomu fiskeldis í fyrra hafi verið síður góðar.

„Verð á laxi hefur ekki verið sérlega gott og síðan höfum við verið að glíma við duttlunga náttúrunnar þannig að þarna eru áskoranir. Það er auðvitað verkefni sem við þurfum að vinna í sameiningu með stjórnvöldum um að bæta hér lagaumgjörðina og gjaldtökuna þannig að við séum að byggja hér upp öfluga útflutningsstoð til framtíðar.“

Afkoma íslensks sjávarútvegs verður kynnt á Sjávarútvegsdeginum í Hörpu. Hægt er að fylgjast með beinu streymi hér.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.