Vilja loka símum sem geta ekki hringt í 112 sem fyrst

Fjarskiptastofa óskaði eftir því að símafyrirtæki lokuðu á alla síma sem ekki geta hringt í Neyðarlínuna fyrir 15. nóvember. Þetta staðfesti innviðaráðherra í svari við fyrirspurn Ingveldar Önnu Sigurðardóttur á Alþingi. Sú vinna tefst en forstjóri Fjarskiptastofu segir ólíðandi að einhverjir nái ekki í Neyðarlínuna í neyðartilvikum. Fjarskiptastofu skorti lagalegar heimildir til þess að krefjast lokanna.

„Við sendum út þessi tilmæli nýlega. Þetta er tæknilega séð nokkuð flókið mál en félögin eru að greina stöðu þessara tækja sem eru ósamhæfð og við erum að vinna með þeim að því. Það mun dragast eitthvað fram yfir þessa dagsetningu sem er 15. nóvember en þetta er stefnan,“ segir Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu. Ekki er hægt að hringa í neyðarnúmerið 112 úr 3-4000 símum, eða um hálfu prósenti 0,5% allra síma í notkun á Íslandi.

Unnið með símafyrirtækjunum sem þó eru uggandi

Ólafur Magnússon, tæknistjóri NOVA, sagði í samtali við fréttastofu að fyrirtækið upplýsti stöðugt notendur sína um stöðu síma þeirra en loki þeim ekki fyrir 15. nóvember. Hann sagði virkt samtal í gangi við Fjarskiptastofu en alls enga ákvörðun hafa verið tekna. Allir eigendur ónothæfra síma hafa fengið tilkynningar um stöðu þeirra frá því að lokunarferlið hófst.

Hrafnkell segir Fjarskiptastofu ekki hafa lagalegar heimildir til þess að krefjast slíkra lokana og sé þetta gert í samstarfi við símafyrirtækin. Allir þeir sem eiga slík tæki eigi að vera búnir að fá fjölmargar tilkynningar frá því að ferlið hófst um að tæki þeirra séu ekki samhæfð til að hringja neyðarsímtöl. Aðspurður hvort fólk sé að velja að vera áfram með ósamhæfða síma segir hann ýmis sjónarmið koma til greina:

„Það eru örugglega ýmiskonar sjónarmiðar sem liggja því til grundvallar ef fólk er með ósamhæfða síma. Það getur verið að fólk hafi valið það, það getur verið að fólk sé ekki í stakk búið til að bregðast við þessu eða hvað annað sem verða vill. Við erum hinsvegar þeirrar skoðunnar að við það verður ekki búið að það séu ósamhæfð símtæki sem ekki geti hringt í neyðarnúmerið 112.“