Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, gefur lítið fyrir yfirlýsingar Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að hún hefði átt samtöl við fleiri stjórnarþingmenn um að ganga til liðs við sinn flokk.
Guðrún fagnaði í gær skiptum Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Hún sagðist þá bjóða fleiri velkomna í Sjálfstæðisflokkinn og að samtöl hefðu átt sér stað. Hún vildi þó hvorki tilgreina einstaka þingmenn né úr hvaða flokkum þeir væru.
Slíkum samtölum væri haldið leyndum
Pawel var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í dag. Hann lýsti lítilli trú á að nokkur samtöl um vistaskipti fleiri þingmanna ættu sér raunverulega stað.
„Segjum að það væri raunverulega þannig að Guðrún Hafsteinsdóttir væri núna í viðræðum við tvo, þrjá þingmenn Viðreisnar um að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn: Væri hún að segja frá því opinberlega? Var hún að segja frá því þegar hún var að ræða við Ingvar Þóroddsson: Ég er að ræða við Ingvar Þóroddsson um að hann komi hugsanlega til liðs við [Sjálfstæðisflokkinn]? Auðvitað er það ekki þannig. Þegar fólk á þessi samtöl, ef þau eiga sér stað, þá er þeim haldið leyndum þar til niðurstaðan liggur fyrir vegna þess að annars staðar fara allar viðvörunarbjöllur á flug að spyrja hvaða aðila væri verið að ræða við. Þannig að ég held að þarna sé Guðrún Hafsteinsdóttir öllu fremur að reyna að búa til þá ímynd að það sé allt í upplausn hjá stjórnarflokkunum og að það sé fullt af fólki að koma yfir, sem ég held að sé ekki tilfellið.“
Frétti af brotthvarfi Ingvars frá þingmanni úr öðrum flokki
Pawel sagði að Ingvar hefði ekki tilkynnt sér eða Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni flokksins, að hann væri genginn úr flokknum, þvert á það sem Ingvar sagði í yfirlýsingu sinni. Pawel sagðist hafa heyrt þetta frá þingmanni úr öðrum flokki. Hann hefði eftir þetta hringt í Ingvar sem hefði ekki svarað í fyrstu. Ingvar hefði hringt til baka tíu mínútum síðar og þá sagt sér að hann væri að fara
„Flestir þingmenn Viðreisnar komust nú bara að þessu þegar hann yfirgaf spjallhópinn hjá okkur. Það var tilkynningin sem flestir þingmenn fengu.“
Ólíkt brotthvarfi Jóns
Pawel sagði að aðdragandinn hefði verið mjög ólíkur brotthvarfi Jóns Gnarr sem hefði átt samtöl við þingmenn Viðreisnar og mætt á þingflokksfund til að kveðja þá.
Pawel sagði einnig að samstarfið við Jón hefði gengið mjög vel eftir úrsögn hans úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefði mætt í allar atkvæðagreiðslur og greitt atkvæði með málum ríkisstjórnarinnar.
