Serbneskur karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna nær tveggja áratuga gamallar írskrar handtökuskipunar hefur haft annan fótinn á Íslandi í áratug, unnið og þegið bætur.
Hann framvísaði fölskum króatískum skilríkjum þegar hann kom fyrst til landsins og fékk íslenska kennitölu. Hann hefur síðan ýmist framvísað fölsku króatísku skilríkjunum eða serbneskum skilríkjum undir öðru nafni en hann var eftirlýstur undir.
Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá landamæradeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir manninn hafa verið stöðvaðan við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli í lok október. Þar framvísaði hann serbneskum skilríkjum, grunur vaknaði um að hann væri hingað kominn til að vinna ólöglega og til stóð að brottvísa honum.
„Svo kemur í ljós að hann virðist skráður sem Króati í einhverjum kerfum hérna hjá okkur. Honum er sleppt og settur í tilkynningaskyldu til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þegar hann kemur á lögreglustöðina til að tilkynna sig tökum við af honum ljósmynd og fingraför og förum að skoða hann hjá Interpol og þá finnum við hann sem eftirlýstan fyrir lögreglu á Írlandi útaf gömlu máli,“ segir Jóhann Karl.
Maðurinn er grunaður um nauðgun á Írlandi 2004. Hann flúði land þegar hann losnaði úr haldi lögreglu en var handtekinn aftur 2007 og ákærður. Hann var látinn laus gegn tryggingu og látinn afhenda ferðaskilríki en lét sig hverfa og hefur verið eftirlýstur síðan.
Maðurinn breytti nafni sínu í Serbíu og fékk útgefin ný ferðaskilríki og þess vegna hafa landamæra- og lögreglukerfi ekki flaggað handtökuskipuninni.
Blekkti Þjóðskrá og þáði bætur
Jóhann Karl segir hann fyrst hafa komið til Íslands 2016. Árið 2017 hafi hann blekkt Þjóðskrá til að gefa sér íslenska kennitölu út á fölsuð króatísk skilríki. Króatía tilheyrir Evrópska efnahagssvæðinu, ólíkt Serbíu, og því hafa króatískir ríkisborgarar leyfi til að búa og starfa á Íslandi.
Maðurinn hefur unnið hérlendis með hléum og þegið bætur.
„Hann er mikið að koma og fara en hefur verið hérna talsvert í vinnu, en missti vinnuna á einhverjum tímapunkti. Svo virðist hann hafa farið í veikindafrí og fengið einhverjar greiðslur úr opinberum sjóðum sem þessi Króati, en átti náttúrulega ekki rétt á því þar sem hann er Serbi að uppruna, þannig hann er búinn að blekkja kerfið hérna í dágóðan tíma.“
Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan upp um hann komst í lok október og Jóhann Karl segir að maðurinn verði að líkindum framseldur til Írlands.
„Ég reikna með því að Írarnir vilji fá hann og deildin okkar er að vinna í þeim málum. Ef hann er framseldur þangað þá taka þeir bara við. Enda brotið hans alvarlegra þar kannski heldur en hér.“
