„Ég man bara ekki til þess á síðustu árum að ríkið hafi verið að selja eignir án auglýsingar“

Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingu á fjárlögum þessa árs.  Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu og vakti málið nokkra athygli í sveitarfélaginu. Húsið stendur nærri nýju baðlóni í Laugarási sem talsvert hefur verið fjallað um í fjölmiðlum.

Það sem er óvenjulegt við málið er að til stóð að ríkið seldi þetta einbýlishús beint til læknisins án auglýsingar á opnum markaði.

Í tillögunni um breytingar á fjárlögum sagði um málið: „Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir að gengið verði til beinna samninga um sölu á 370 fermetra einbýlishúsi í Laugarási í eigu ríkisins til yfirlæknis heilsugæslunnar sem hefur verið með húsið á leigu um árabil vegna starfa sinna hjá heilbrigðisstofnunni. […] Ljóst er að um sérstakt tilvik er að ræða sem snýr að lausn á húsnæðisvanda lykilstarfsmanns í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Af þeim sökum er talið réttlætanlegt að óska eftir beinni söluheimild í þessu tilviki… “

Læknirinn er yfirlæknir heilsugæslunnar á Flúðum í Hrunamannahreppi sem er hluti af Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Hún heitir Hafdís Sif Svavarsdóttir. Heilsugæslan var áður í Laugarási og starfaði Hafdís hjá henni þar og bjó í þessu læknishúsi. Heilsugæslan var svo flutt á Flúðir í fyrra.

Hafdís segir við fréttastofu að salan á húsinu til hennar sé dottin upp fyrir og að ekkert verði því af henni. Hún segist hafa haft húsið á leigu um árabil en að hún hafi flutt út úr því í fyrra. Hafdís segist að samkvæmt síðustu samskiptum hennar við Framkvæmdasýslu ríkisins standi nú til að selja húsið á opnum markaði með auglýsingu en ekki beint til hennar eins og til stóð.

Fjallað er um málið og umræðuna í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:Íslenska ríkið hafði til skoðunar að selja tilteknum lækni 370 fermetra íbúðarhús í Laugarási í Bláskógabyggð með sérstakri heimild sem óskað var eftir með breytingum á fjárlögum í fyrra. Beiðnin um söluna á húsinu kom frá heilbrigðisráðuneytinu.

Óvenjulegt að ætla að selja ríkiseign beinni sölu

Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð, Ásta Stefánsdóttir, segir að það sé óvenjulegt fyrirkomulag að ætla að selja ríkiseign beint til einstaklings með þessum hætti og að talsvert hafi verið rætt um málið í sveitarfélaginu. Það kom þó ekki með formlegum hætti inn á borð sveitarstjórnarinnar enda kemur hún ekki að því með beinum hætti segir Ásta.

Ásta segir sveitarfélagið hafa spurst fyrir um málið hjá ríkinu með óformlegum hætti.    „Ég man bara ekki til þess á síðustu árum að ríkið hafi verið að selja eignir án auglýsingar. Ég hef ekki heyrt af svona máli í einhverja áratugi. Þetta getur kannski hafa tíðkast hér áður fyrr. Þegar það var verið að flytja heilsugæsluna úr Laugarási á Flúðir, sem er nú ekki mjög langt síðan, þá voru þar færð ýmis rök fyrir því að sá flutningur væri nauðsynlegur. Þar á meðal að það væri nú meira framboð á íbúðarhúsnæði á Flúðum fyrir starfsmenn og fyrir lækna. Það að tengja söluna á þessari eign við yfirlækni á heilsugæslu sem er ekki lengur á staðnum er svolítið sérstakt,“ segir Ásta en starfandi yfirlæknir í Laugarási bjó í þessu húsi um áratugaskeið á meðan heilsugæslan var starfandi þar.

Óskar Jósefsson, forstjóri Framkvæmdasýslunnar- Ríkiseigna, segir í svari í tölvupósti til fréttastofu frá stofnuninni að ólíklegt sé að gengið verði frá sölu hússins með þessum hætti þrátt fyrir að það hafi verið til umræðu. „Getur upplýst að umrædd sala á Launrétt 6 mun ólíklega ganga eftir og mér að vitandi er ekki er um endurnýjun á þessari heimild að ræða í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.“

Fréttastofa sendi spurningar um viðskiptin fyrirhuguðu með húsið í Laugarási til heilbrigðisráðuneytisins. Svör hafa ekki borist. Samkvæmt svörum frá ráðuneytinu verður spurningum um málið hins vegar svarað. Hvernig þetta óvenjulega mál kom til á því eftir að koma í ljós og eins af hverju, og á hvaða forsendum, ákveðið var að selja húsið ekki með þessum hætti.