Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sem sinna meðgönguvernd geta loks pantað rannsóknir í eigin nafni í stað þess að skrá þær á lækna. Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir breytinguna löngu tímabæra. Með henni séu verkferlar einfaldaðir og gerðir öruggari.
„Þetta er í raun og veru ekki mikil breyting á störfum ljósmæðra af því ljósmæður eru að panta allar þessar blóðprufur sjálfar, en hingað til þá hafa þær þurft að finna eitthvað læknanúmer til þess að setja á blóðprufubeiðnirnar,“ segir Unnur.
„Það er miklu öruggara að þetta fari bara í vinnuhólfið hjá ljósmæðrunum í staðinn fyrir hjá einhverjum lækni sem þekkir jafnvel ekki konuna, veit ekki einu sinni að hún er ólétt og er ekki með hana í neinni meðferð. Það eru ljósmæðurnar sem eru að sinna meðferðinni.“
Vilja fá að skrifa undir vottorð sjálfar
Breytingin er hluti af átaki um að bæta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustu. Unnur segist vona að næsta skref verði að ljósmæður geti sjálfar undirritað vottorð í stað þess að fá lækni til þess.
„Ég vona að vottorðin verði næsta skref og þau komi fljótlega. Þegar þú ert búin að vera að skrifa út vottorðin, þú ert með skjólstæðinginn, þú ert meðferðaraðilinn, að fá einhvern annan aðila til að kvitta undir, það er bara óþarfi.“
Unnur segir löngu tímabært að ljósmæður geti sinnt þessum málum sjálfar.
„Ég skil eiginlega ekki hvernig þetta hefur getað tíðkast í svona mörg ár að hinir og þessir séu í raun og veru að nota læknanúmer til þess að óska eftir einhverri blóðprufu sem læknirinn er ekkert að sinna. Ég myndi ekki vilja að mitt ljósmæðranúmer væri notað svona af hinum og þessum. Það á að vera rekjanleiki í því sem þú ert að gera, að það sem þú ert að gera þá notarðu þitt númer á beiðnirnar.“
